Til að byrja með þarftu að finna viðeigandi pöntun í spjaldtölvunni. Ef hún er ekki opin þá getur þú farið í Orders List og leitað að henni þar til að opna.
Smelltu á myndina af persónu með plús við hliðin á.

Um leið og þú smellir á það opnast gluggi þar sem efsti reitur biður um SSN eða Kennitölu. Sláðu inn kennitölu í þennan reit og kerfið mun byrja leita í þjóðskrá og staðfestir rétt nafn þegar allar 10 tölurnar hafa verið slegnar inn. Smelltu á viðeigandi nafn sem kemur fyrir neðan.

Smelltu á UPDATE og þá hefur þú bætt kennitölu við pöntunina. Hægt er að prenta út kvittun með kennitölu á staðnum en pöntunin mun líka uppfærast í Admin og vera þá skráð á viðeigandi viðskiptavin.