Nýr notandi í teymið þitt

Bæta notanda við SalesCloud teymið þitt

  1. Innskráðu þig á admin.salescloud.is og veldu Company í valdmyndinni vinstra meginn og svo Team.
  2. Smelltu á Add to team og það mun gluggi opnast með 5 skrefum.
    Skref 1: Fylltu út nauðsynlegu reitina Full name og E-mail og smelltu svo á Next.
    Skref 2: Skráðu inn í reitinn phone number, en ef þú ert ekki með símanúmerið þá er í lagi að setja N/A og smella svo á Next.
    Skref 3: Kerfið getur framleitt lykilorð fyrir notandann eða þú getur skrifað þitt eigið og smellir svo á Next.
    Skref 4: Veldu það hlutverk (Role) sem á við notandann. Það er alltaf sjálfvalið Standard. Vanalega er ekki mælt með að breyta þessu. Smelltu svo á Next.
    Skref 5: Þetta er lokaskrefið sem sýnir þér yfirlitið yfir upplýsingarnar um nýja notandan. Þegar allt er klárt þá smellir þú á Invite og tölvupóstur verður sendur á nýja notandann.

Athugið: Ef notandinn er þegar með aðgang hjá öðru teymi í SalesCloud þá þarf ekki að setja inn upplýsingar í skrefi 2 og 3.