Bókhaldstenging við Payday

Ef þú ert að nota bókhaldskerfi Payday og sölukerfi Noona þá getur þú nú tengt kerfin saman á einfaldan hátt þannig að salan í Noona flæði beint inn í bókhaldið þitt. Þetta ætti því að geta sparað þér tímann og peninginn sem fer í bókhaldið. 


Helstu eiginleikar samþættingarinnar

Reikningar, kreditreikningar og endurgreiðslur úr Noona skrást beint í færslubók í Payday. Athugið að endurgreiðslur þar sem aðeins hluti upphæðarinnar er endurgreidd koma ekki yfir í Payday.

Ef viðskiptavinur er í reikningsviðskiptum þá er viðskiptamaður stofnaður beint í Payday og krafan send þaðan út. 


Hver getur notað tenginguna?

Forkröfur þess að þú getir tengt sölukerfi Noona við Payday er að þú þarft að vera skráður í Allur pakkinn hjá Payday og vera í sölukerfinu hjá Noona. Þessi tenging kostar þig ekkert aukalega. 


Tengja Payday við Noona
  1. Skráðu þig inn á Noona HQ aðganginn þinn.
  2. Farðu í Valmyndina -> Stillingar -> Viðbætur. 
  3. Finndu Payday appið og smelltu á Tengja.


  4. Síðan þarftu að veita Payday aðgang með því að smella á Samþykkja takkann.


  5. Nýr gluggi með Payday ætti að opnast og þú skráir þig inn. Ef þú ert þegar skráð(ur) inn í Payday þá er þessu skrefi sleppt sjálfkrafa.
  6. Því næst birtist gluggi þar sem þú getur stillt Noona samþættinguna. Tengja þarf alla greiðslumáta í Noona við þá bókhaldslykla sem bóka á greiðslurnar á í Payday. Þú getur alltaf fundið þessar stillingar undir Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar í Payday. Þar ættir þú finna Noona í listanum.

Hvernig fjarlægi ég tenginguna?

Þú fjarlægir tenginguna við Payday með því að fara undir Stillingar -> Aðgangur -> Viðbætur og smella á ruslatunnuna við Payday appið. Ef það er engin ruslatunna og það stendur Tengja (Install) þá er appið ekki lengur tengt.


Eins og alltaf, ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna 💛