Það er fátt verra fyrir þinn rekstur en að lenda í skrópum og hafa enga leið til þess að rukka fyrir tímann sem þú hafðir tekið frá í dagatalinu þínu. Sem betur fækka SMS áminningarnar skrópum til muna, en það eru þó fleiri leiðir sem þú getur nýtt þér inn í Noona HQ!
Staðfestingargjöld
Með Noona Pay getur þú sett upp staðfestingargjöld þegar viðskiptavinir bóka tíma hjá þér á Noona. Ef afbókað er innan þíns afbókunarramma fær viðskiptavinur sjálfkrafa endurgreitt.
Viltu bara hafa staðfestingargjöld þegar ákveðnar þjónustur eru bókaðar eða hjá ákveðnum starfsmönnum? Þú getur stjórnað því.
Smelltu hér til þess að læra meira um Noona Pay!
Skrópvörn
Með skrópvörn Noona getur þú sent út kröfu í heimabanka til viðskiptavina ef þeir mæta ekki í tímann.
Smelltu hér til þess að læra meira um skrópvörnina!
Við mælum sérstaklega með staðfestingargjöldum þar sem að upplifun viðskiptavina er almennt betri ef þau hafa greitt fyrir tímann fyrir fram og mæta síðan ekki, en að fá kröfu í heimabanka eftir að hafa ekki mætt í tíma🫶
Bæði
Notaðu staðfestingargjöld fyrir þá sem bóka á netinu en skrópvörnina fyrir þá sem þú bókar beint inn á dagatalið.
Ekki hika við að heyra í okkur í gegnum spjallbúbbluna ef þú hefur einhverjar spurningar 💛