Eyða út starfsmannaaðgangi

Til þess að eyða út starfsmanni er farið í valmyndina -> Starfsmenn -> smellir á starfsmanninn sem á að eyða út -> Fjarlægja.

Við það koma upp tveir möguleikar, annars vegar að fjarlægja úr fyrirtæki og hins vegar að fjarlægja en halda tímabókunum á dagatali. Skoðum þessa möguleika aðeins betur:

  1. Fjarlægja úr fyrirtæki: þetta eyðir aðgangi starfsmannsins, dálknum hjá viðkomandi á dagatalinu og öllum tímunum á dagatalinu hjá viðkomandi starfsmanni
  2. Fjarlægja en halda tímabókunum á dagatali: þetta mun einnig eyða aðgangi starfsmannsins en dálkurinn fyrir viðkomandi sem og tímabókanir á dagatalinu munu haldast inni. Neðst á starfsmannalistanum mun svo nafnið hjá starfsmanninum haldast inni og hvenær sem er hægt að velja að eyða viðkomandi varanlega eða endurheimta starfsmann. Ef að valið er að eyða varanlega er það eins og "Fjarlægja úr fyritæki" hér að ofan. En ef að starfsmaður er endurheimtur mun aðgangurinn hjá viðkomandi virkjast aftur eins og áður en honum var eytt.


Ekki hika við að hafa samband við okkur ef að einhverjar spurningar vakna 🧡