Bókunarbil

Bókunarbil

Bókunarbil segir til um á hvaða tímasetningum lausir tímar birtast í netbókunum hjá viðkomandi starfsmanni.

Ef bókunarbilið er t.d. stillt á 15 mínútur geta lausir tímar birst kl. 10:15, 10:30, 10:45 o.s.frv.

Bókunarbilið getur þó hliðrast ef næsti lausi tími hefst á óreglulegum tíma. Ef fyrri bókun lýkur til dæmis kl. 10:20 getur næsti lausi tími birst kl. 10:20 og síðan 10:35, 10:55 o.s.frv., í stað þess að fylgja hefðbundna 15 mínútna bilinu.

Til þess að bókanir séu á klukkutíma fresti þarf bókunarbil starsmannsins að vera 60 mín.

Hvernig breyti ég bókunarbili starfsmanns?

Til þess að stilla bókunarbilið ferðu í Valmyndina -> Starfsmenn -> smellir á viðkomandi starfsmann -> Netbeiðnir -> Bókunarstillingar og velur þar bókunarbilið sem þú vilt nota.

Samspil bókunarbils starfsmanns og dagatals

Til þess að tryggja að allir mögulegir lausir tímar nýtist þarf bókunarbil dagatalsins að passa við bókunarbil starfsmannsins.

Til þess að stilla bókunarbil dagatalsins er hægt að fara í Valmyndina -> Stillingar -> Dagatal.

Bókunarbil dagatalsins þarf að ganga upp í bókunarbili starfsmannsins. Ef bókunarbil starfsmanns er til dæmis 30 mínútur getur bókunarbil dagatalsins verið 5, 10, 15 eða 30 mínútur.

Bókunarbil dagatalsins getur aftur á móti ekki verið 20 mínútur ef bókunarbil starfsmannsins er 30 mínútur. Þá falla bilin ekki saman og mögulegt er að lausir tímar í dagatalinu nýtist ekki að fullu.

Við mælum því með að fara yfir báðar stillingarnar og ganga úr skugga um að bókunarbil dagatalsins gangi upp í bókunarbili starfsmannsins.


Þá er það ekki fleira í bili, en ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna💛