Heimaskjárinn er svæði sem sýnir þér reksturinn þinn í hnotskurn.
Markmiðið með heimaskjánum er að veita þér innsýn inn í daginn þinn ásamt því sem þú getur nálgast upplýsingar um nýjungar í kerfinu og flýtileiðir.
Hvað inniheldur heimaskjárinn?
Bókanir dagsins
Hér sérðu upplýsingar um heildarfjölda bókana dagsins, fjölda netbókana, fjölda nýrra viðskiptavina ásamt yfirliti yfir næstu bókanir dagsins.
Þú getur síjað ofantalda tölfræði eftir þér eða fyrirtækinu í heild sinni. Ef þú ert með fleiri en eitt útibú geturðu skoðað tölfræði hjá
hinum útibúunum sömuleiðis.

Ef þú smellir á tímabókun í listanum yfir næstu bókanir opnast viðkomandi bókun.

Sölutölur dagsins
Hér sérðu upplýsingar um sölutölur dagsins brotið niður á heildarsölu, netgreiðslur, meðalsala hverrar tímabókunar ásamt vinsælustu þjónustum dagsins.

Flýtileiðir
Þú getur nálgast ýmsar flýtileiðir í kerfinu inn á heimaskjánum.

Tilkynningar
Neðst á heimaskjánum munum við kynna virkni sem er nýleg í kerfinu.
Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.