Hver er munurinn á giftcard item og coupon item í SalesCloud

Gjafabréf eða Giftcard item er er notað þegar þú selur gjafakort með ákveðinni fjárhæð, til dæmis 10.000 kr. gjafakort.
Hægt er að selja gjafakort bæði í vefverslun og í POS-kassa.

Ef þú ert ekki með vefverslun nægir að stofna eina gjafakortsvöru, þar sem þú getur alltaf breytt upphæðinni þegar gjafakortið er selt í POS appinu á staðnum.

Ef þú ert með vefverslun mælum við með að stofna:

- eina gjafakortsvöru sem er eingöngu notuð í POS, t.d. með heitinu „Gjafakort“ eða „Gjafabréf“
- fleiri gjafakortsvörur með föstum upphæðum, t.d. „5.000 kr. gjafakort“, „10.000 kr. gjafakort“ o.s.frv. sem væri þá seld í gegnum netsölu.

Nánari upplýsingar má finna í leiðbeiningunum : Hvernig á að stofna gjafabréf (giftcard item).

Þegar viðskiptavinur kemur með gjafabréf fyrir upphæð þá þarf að nota greiðslumátann "gjafabréf" sem er hægt að finna undir Pay hnappnum í SalesCloud POS appinu.




Gjafabréf eða Coupon Item er notað þegar þú selur gjafabréf sem gildir fyrir ákveðna vöru eða þjónustu, til dæmis þriggja rétta kvöldverð fyrir tvo.
Þessar vörur er aðeins hægt að selja í vefverslun.

Algengt er að selja gjafabréf fyrir upplifanir eða þjónustu. Til dæmis gæti veitingastaður viljað selja gjafabréf fyrir þriggja rétta kvöldverð fyrir tvo.

Í því tilfelli stofnarðu Coupon Item sem innleysir vöruna „Þriggja rétta kvöldverður“ tvisvar sinnum.

Coupon Item er einnig notað til að búa til klippikort, til dæmis 10 kaffibolla klippikort.
Nánari upplýsingar má finna í leiðbeiningunum :  Hvernig á að stofna klippikort.

Þegar viðskiptavinur kemur með gjafabréf fyrir vöru þá þarf að smella á þrjá punktana við hliðina á Pay hnappnum í SalesCloud POS appinu og velja "Redeem Coupon".


Í stuttu máli : 


Gift Card Item
Coupon Item
Notað fyrir gjafakort með ákveðinni upphæð.Notað fyrir gjafabréf á ákveðna þjónustu eða vöru og fyrir klippikort.
Hægt að selja bæði í vefverslun og í POS.Aðeins hægt að selja í vefverslun.