Klippikort

Stofna klippikort

Til þess að stofna klippikort í kerfinu byrjar þú á því að fara í Valmyndina -> Sala -> Stillingar gjafabréfa. Þar smellir þú á bláa "+ Bæta við" hnappinn.

Þar setur þú inn upplýsingarnar sem þú vilt að komi fram á klippikortinu. Þú byrjar á því að tengja klippikortið við ákveðna þjónustu. Næst bætir þú við titli, velur fjölda skipta og gildistímann á því.

Verðgildið á klippikortinu tengist verðinu á þjónustunni og fjölda skipta sem þú velur. Þú ræður síðan hvort þú hafir söluverðið sama verð eða eitthvað annað. Þetta er til dæmis sniðugt að nota ef þú vilt gefa viðskiptavinum magnafslátt.

Síðan setur þú inn lýsingu á klippikortinu sem birtist í netsölunni og einnig texta sem birtist á klippikortinu sjálfu.

Næst er að breyta útlitinu á klippikortinu. Þú getur sett inn myndir og valið bakgrunnslit sem þú vilt hafa. Þú getur einnig skoðað sýnidæmi um það hvernig klippikortið myndi lýta út fyrir viðskiptavininn.

Selja klippikort á netinu

Til þess að geta selt klippikort á netinu þá þarftu að byrja á því að setja upp greiðslugátt hjá færsluhirði. Þú getur sótt um greiðslugátt með því að fylla út þetta form.

Þegar greiðslugáttin er tilbúin þá þarftu einfaldlega að fara inn í klippikortið og haka í "Selja á netinu".

Innleysa klippikort

Ef þú ert að nota sölukerfið opnarðu tímabókunina og velur Afgreiða ➡️ Greiða ➡️ velur greiðslumátann gjafabréf og setur þar inn kóðann á gjafabréfinu. Þú getur fundið lista yfir öll gjafbréf/klippikort og kóðanum á þeim í Valmyndinni -> Sala -> Gjafabréf.

Ef viðskiptavinurinn er tengdur við klippikortið mun það koma sjálfkrafa undir inneign í söluferlinu.

Athugið að viðskiptavinurinn verður að vera bókaður í sömu þjónustu og klippikortið er tengt. T.d. má hann ekki vera bókaður í þjónustuna Heilsunudd en eiga klippikort fyrir Íþróttanuddi. Þá þarf að byrja á því að breyta þjónustunni á bókuninni til þess að geta notað klippikortið.

Ef fyrirtækið þitt leyfir fyrirframgreiðslur við bókun þá getur viðskiptavinurinn líka notað klippikortið sitt við bókun og þá þarft þú ekkert að pæla meira í tímanum. Í þessari  hjálpargrein förum við yfir valmöguleikana sem fyrirframgreiðslur bjóða upp á.

Staðan á klippikortum

Þú getur skoðað stöðuna á öllum klippikortum sem þú hefur selt með því að fara í Valmyndina -> Sala -> Gjafabréf. Þar sérðu lista yfir öll þau klippikort og gjafabréf sem hafa verið stofnuð í kerfinu.


Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallbúbbluna. Hlökkum til að heyra frá þér! ❤️