Herferðir og tilkynningar

Þú getur nýtt þér Noona HQ til að senda út tilkynningar á viðskiptavinina þína. Tilkynningarnar nýtast t.d. til að láta viðskiptavini vita af veikindum, afsláttum eða eitthverju allt öðru!

Það er lítið mál að senda út tilkynningar í SMS-um frá Noona HQ en það er einnig hægt að hlaða niður viðskiptavinum í .csv skrá til þess að nýta sér fríar lausnir eins og Mailchimp til þess að senda út tilkynningar í tölvupósti.

Hvar finn ég hópskilaboð?

Þú getur farið í Valmyndina -> Hópskilaboð sem er vinstra megin á skjánum undir "skilaboð".



Hvernig stilli ég hverjir fá tilkynninguna?

Ef þú vilt senda tilkynninguna út sem SMS til viðskiptavina getur þú byrjað á því að skrifa skilaboðin í hvíta kassann undir "skilaboðin".

Svo er það bara að velja hverjir eiga að fá skilaboðin. Hér eru fjórar leiðir til að sía út viðskiptavini:

  1. Viðskiptavinir starfsmanns: Hjá hvaða starfsmanni hefur þessi viðskiptavinur bókað tíma. Nýtist t.d. vel til að láta vita af veikindum eða flutningi milli vinnustaða.
  2. Hafa bókað þjónustu: Hvaða þjónustu hefur viðskiptavinurinn komið í . Gagnlegt t.d. ef það er verið að bjóða upp á afslátt á ákveðinni þjónustu.
  3. Tilheyra hópnum: Á hvaða viðskiptavinahóp á að senda.
  4. Tími bókunar: Á hvaða tímabili á/átti viðskiptavinurinn bókaðan tíma. T.d. gagnlegt til þess að senda áminningu um endurkomu.


Hvernig sendi ég tilkynninguna?

Þegar þú hefur valið hópinn sem að þú vilt að fái tilkynninguna getur þú séð neðst hversu margir viðskiptavinir þetta eru og hvað skilaboðin munu kosta ef að þú vilt senda tilkynninguna út sem SMS. 
Þá er hægt að senda út tilkynninguna með því að smella á bláa "Senda út herferð" takkann til að senda út SMS.

Ef að þú vilt frekar senda út tölvupóst velur þú að hlaða niður .csv skrá og þá getur nýtt þér frí forrit eins og t.d. MailChimp.


Gangi ykkur vel og ekki hika við að hafa samband í gegnum bláu spjallbúbbluna ef að þið hafið frekari spurningar ❤️