Tengja posa frá Verifone/Landsbankanum


Hvernig virkar posatenging?

Hægt er að tengja posa frá Verifone við sölukerfi Noona. Með því hoppar upphæðin beint í posann um leið og þú velur greiðslukort sem greiðslumáta í sölukerfi Noona og reikningurinn merkist sem greiddur um leið og posafærslan fer í gegn. Þetta tryggir það að reikningar séu að stemma við færslur í posanum, réttur posi sé valinn við afgreiðslu og síðan skapar þetta auðvitað aukin þægindi & tímasparnað.


Setja upp posatengingu

Ert þú að nota Noona HQ í vafra eða appið? Það skiptir ekki máli á hvorum staðnum þú tengir posann en hér fyrir neðan eru leiðbeiningar fyrir hvoru tveggja.

  Ertu verktaki?

Áður en þú byrjar á því að tengja posann passaðu þá upp á að eftirfarandi atriði séu í lagi:

1. Þú ert skráð/-ur inn á þinn eigin Noona HQ aðgang. Ef þú ert ekki viss geturðu farið undir Stillingar -> Almennt og séð þar netfangið sem         er innskráð.

2. Sért skráð/-ur sem verktaki í sölukerfinu. Smelltu hér til þess að finna upplýsingar um hverngi það er gert.

3. Nú er allt klárt og þú getur fylgt leiðbeiningunum hér að neðan.


1. Farðu í Valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu (ef þú ert í vafra) en niðri í hægra horninu (ef þú ert í appinu). Svona lítur merkið út: 

2. Því næst skrollarðu neðst niður undir Stillingar → Greiðsluleiðir  → Mínir posar sem þú finnur undir Sala (ef þú ert í vafra) eða smellir á Þrjá punktana uppi í  hægra horninu → Stillingar → Greiðsluleiðir → Mínir posar (ef þú ert í appinu).

Ef þú ert með hlutverkastillingar sem kallast Starfsmaður í Noona HQ getur þú ekki séð flipann Greiðslumáti. Því myndir þú fyrst þurfa að biðja eiganda um leyfi fyrir þessum stillingum.



3. Núna smellirðu á Mínir posar → Tengja verifone posa.

Athugið að það er ekki nóg að vera skráður inn á hvaða eiganda aðgang sem er heldur þarf það að vera aðgangurinn sem er tengdur útgefandanum eða sama netfang og er skráð hjá færsluhirðinum.


4. Nú opnast gluggi þar sem þú þarft að setja inn User ID og API ykil. Þegar það er klárt smellirðu á tengjast.

Veistu ekki hvar User ID og API lykillinn er?


User ID (notendakenni)

1. Skráðu þig inn á Verifone síðuna þína með því að smella hér.

2. Smelltu á svarta hringinn uppi í hægra horninu.

3. Farðu í My Account.

4. Afritaðu User ID og settu inn í Noona HQ.


API Key (API lykill)


1. Enn innan Verifone síðunnar. Smelltu á svarta hringinn uppi í hægra horninu.

2. Farðu í API Keys.

3. Veldu Create API key (ef þú ert ekki með API lykil nú þegar).

4. Afritaðu kóðabútinn og settu inn í Noona HQ.


5. Velur réttan posa út frá S/N númerinu sem þú finnur aftan á posanum þínum.

6. Velur hvaða útgefanda á að tengja við posann.

7. Ef þú ert nú þegar með tengdan posa smellirðu á gamla posann sem er nú þegar tengdur undir greiðsluleiðir og smellir á aftengja frá útgefanda.

Nú er allt klárt og upphæðin úr sölukerfinu byrjar að hoppa inn í posann!


Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallbúbbluna. Hlökkum til að heyra frá þér! 💛