Endurgreiða úr pöntun í POS appinu

Ef að það þarf að endurgreiða vöru í gegnum POS appið í spjaldtölvunni þá þarf að fara í gegnum þessi skref. 

1. Farðu í Orders > Closed og veldu pöntunina sem á að endurgreiða.

2. Þær vörulínur sem eru greiddar í pöntuninni eru merkar með haki fremst í vörulínunni. Haltu inni hverri vörulínu sem þú vilt endurgreiða og veldur "Refund"

3. Þegar þú hefur valið allar vörulínurnar sem á að endurgreiða skaltu ýta á græna greiðsluhnappinn og senda færsluna í posann. 

4. Viðskiptavinurinn þarf að setja greiðslukortið við posann til að klára endurgreiðsluna. 


Ath. þetta er ekki hægt þegar það er verið að nota Teya posa, velja þarf greiðslumátann "Teya refund" og setja endurgreiðsluna í gang handvirkt í posanum.