Hvernig á að senda greiðsluhlekk (PayLink)

Ef þú ert með tengda greiðslugátt við SalesCloud þá er hægt að senda greiðsluhlekk úr kerfinu í gegnum tölvupóst. Bæði er hægt að finna pantanir sem hafa verið stofnaðar í POS appinu í spjaldtölvunni eða stofna pöntun frá grunni í bakenda kerfisins. Við munum fara yfir báðar leiðir hér fyrir neðan. 

Pöntun sem hefur nú þegar verið stofnuð :

1. Farðu í Sales > Orders
2. Hægt er að filtera eftir upphæð, dagsetningu eða eftir status "unpaid" til að finna rétta pöntun ef hún er ekki skráð á viðskiptavin.
3. Þegar þú ert komin með rétta pöntun upp á listann þá þarftu bara að smella á 3 punktana hægra megin og velja "Paylink"


Þá kemur upp gluggi þar sem þú velur sölurásina fyrir þessa pöntun en salan mun bókast á þá sölurás sem þú velur í þessu skrefi. Síðan er netfang viðskiptavinar sett inn og smellt á SEND

Um leið og viðskiptavinur klárar greiðslu í gegnum hlekkinn breytist pöntunin í bakenda og verður skráð sem "paid in full"


Stofna pöntun frá grunni :

1. Farðu í Sales > Orders
2. Smelltu á "New Order"
3. Veldu viðeigandi viðskiptavin. Ef að hann er ekki til í kerfinu þá þarf að stofna hann fyrst en leiðbeiningar fyrir því er hægt að finna hér.
4. Veldu viðeignadi sölurás en salan mun bókast á þá sölurás sem þú velur í þessu skrefi
5. Smelltu á Create Order

Núna ertu komin inn í pöntunina sem þarf að setja upp en þú bætir við vörum með því að smella á "Add Line Item"

Veldu viðeigandi vörur fyrir pöntunina

Um leið og vörurnar eru komnar inn í pöntunina kemur upp "Paylink" hnappur efst í hægra horninu. Smelltu á hann og settu inn netfangið sem á að fá hlekkinn.