Minnnispunktar og athugasemdir
Þegar þú smellir á tímabókanir opnast svokallað viðskiptavinaspjald. Spjaldið er sett þannig upp að allt sem birtist vinstra meginn á við um viðskiptavininn sjálfan, á öllum tímabókunum, en allt hægra meginn á einungis við um þessa tilteknu tímabókun.
Ef þú breytir eitthverjum upplýsingum vinstra meginn (appelsínuguli kassinn á myndinni hér að neðan) munu þær breytingar einnig uppfærast á öllum öðrum tímum hjá þessum tiltekna viðskiptavini. Allar upplýsingar sem birtast hægra meginn (blái kassinn á myndinni hér að neðan) hafa bara áhrif á þennan tiltekna tíma:

Minnispunktar sem fylgja viðskiptavin
Hér er gott að skrá eitthvað sem breytist ekki og þú vilt muna þegar að viðkomandi mætir næst.
Tökum dæmi hér að Sara hafi verið að segja mér að hún sé að fara að gifta sig á næsta ári. Þar sem að hún er fastakúnni hjá mér gæti mig langað að spurja hana næst hvernig undirbúningur fyrir brúðkaupið gengur, þá skrifa ég þessar upplýsingar undir minnispunktar sem fylgja viðskiptavini:

Þetta eru upplýsingar sem ég mun sjá í hvert skipti sem ég opna viðskiptamannaspjaldið hjá Söru.
Viðskiptavinir geta ekki séð hvað þú skrifar í þessum reit, þetta er einungis eitthvað sem þú sérð.
Athugasemdir sem fylgja tímabókun
Hægra megin á viðskiptamannaspjaldinu sérðu dálk sem heitir "Athugasemdir". Hér er gott að skrifa eitthvað sem tengist tímabókuninni sjálfri. Þetta ereitthvað sem þú munt sjá þegar þú opnar þessa tilteknu tímabókun.

Viðskiptavinir geta ekki séð hvað þú skrifar í þessum reit, þetta er einungis eitthvað sem þú sérð.
Ekki hika við að heyra í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, vangaveltur eða athugasemdir. Þú getur sent okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna💛