Merkja mætingu

Merkja mætingu

Til þess að merkja mætingu í Noona HQ getur þú smellt á bókunina í dagatalinu og undir Valinn tími smellir þú á "Mæting".

Þá koma upp þeir möguleikar sem kerfið býður upp á.

Það eru fjórar fastar mætingar sem hægt er að merkja í Noona HQ: Mætti, Afbókaði, Skrópaði og Afgreitt.

1. Mætti: setur lítinn grænan miða í hægra hornið á tímanum og gefur til kynna að viðskiptavinurinn sé kominn.
Þessi merking nýtist t.d. sérstaklega vel hjá fyrirtækjum með ritara, þar sem ritarinn getur merkt að viðskiptavinurinn sé mættur og þannig getur þú vitað hvenær þú átt að fara fram að sækja viðkomandi.

2. Afbókaði: þegar að tími hefur verið afbókaður verður hann fölari, tekur minna plássog fær appelsínugulan miða í hægra hornið. Við mælum með því að merkja tíma frekar sem afbókaða en að eyða þeim af dagatalinu þegar viðskiptavinir afbóka. Þannig getur þú haldið utan um hvað viðkomandi hefur afbókað oft. Þar sem að tíminn tekur minna pláss núna hefur þú líka möguleikann á því að bóka annan tíma við hliðina á honum!

3. Skrópaði: tíminn fær gulan miða í hægra hornið og hann verður einnig fölari eins og þegar tímar eru merktir "afbókaðir". Ef þú ert með skrópvörnina getur þú einnig sent út skrópkröfu fyrir tímanum.

4. Afgreitt: tíminn fær bláan miða efst í hægra hornið. Þetta getur t.d. nýst vel til þess að halda utan um hverjir hafa greitt fyrir tímann.

Þú getur einnig flýtt fyrir þér og hægri smellt á bókunina og merkt mætinguna beint í gegnum dagatalið.

Sérsniðnar bókunarstöður

Þú getur einnig búið til þínar eigin bókunarstöður með því að smella á bókunina í dagatalinu -> mæting -> manage statuses -> og undir Bókunarstöður getur þú smellt á "Ný bókunarstaða" og búið til þín eigin.

Þetta getur t.d. verið sniðugt ef þú vilt halda utan um veikindi viðskiptavina. 


Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.