Rafrænir reikningar í gegnum Inexchange

Til að geta sent út reikninga í gegnum rafræna skeytamiðlun þarftu að byrja á að skrá þig inn á admin.salescloud.is.

Fyrsta skrefið er að setja upp tenginguna, finndu More > Integrations í valmyndinni vinstra megin á skjánum.

Í listanum þar getur þú leitað eftir Inexchange og smellt á það til að fá upp nánari upplýsingar. 

Smelltu á "Install" og kerfið lætur þig vita að kostnaðurinn er 2500 kr á mánuði en það kostar líka 25kr hvert skeyti. Ef þú samþykkir smelltu þá á "Try for 30 days" og þá ætti að koma upp grænn gluggi sem segir að tenging sé komin á milli SalesCloud og InExchange. 

Þegar þetta er komið þarf að stilla viðskiptavininn en athugið, viðskiptavinurinn þarf líka að vera skráður hjá Inexchange til að geta tekið á móti reikningunum. 

Farðu í Customers og finndu réttan viðskiptavin í listanum. Smelltu á nafnið og undir General Info > Invoicing eru þrjú atriði sem hægt er að stilla. Það efsta "Invoicable" gefur viðskiptavin leyfi til að vera í reikningsviðskiptum. Það þarf að haka í það. "Deliver Invoice" er fyrir email sendingar með PDF afriti af reikningum en "Deliver to Inexchange" er fyrir rafræna skeytamiðlun. Það þarf líka að haka í þetta seinasta. Ef að hakað er líka í "Deliver Invoice" mun viðskiptavinurinn líka fá PDF afrit af reikningnum.

Til að geta vistað viðskiptavininn þarf að vera skráð email undir Contact upplýsingunum.