Tengja netbókanir við vefsíðu

Það eru þrjár leiðir til þess að birta Noona prófílinn þinn og þar með leyfa viðskiptavinum að bóka hjá þér á netinu:

  • Á þinni eigin vefsíðu.
  • Í Noona appinu.
  • Á noona.is

Mismunandi möguleikar

Bókunartakki á vefsíðu

Virkar þannig að inn á heimasíðunni þinni ertu með takka sem hægt er að smella á og í kjölfarið opnast nýr bókunargluggi inn á prófílinn þinn á Noona. 

  1. Farðu í Valmyndina -> Stillingar -> Netbeiðnir -> Sýnileiki.
  2. Skrollaðu niður þangað til þú finnur "Vefslóð".
  3. Afritaðu vefslóðina sem birtist þar undir og bættu henni við inn á heimasíðuna hjá þér.


Bókunargluggi á vefsíðu

Virkar þannig að inn á heimasíðunni þinni er bókunargluggi og viðskiptavinir geta þá bókað tíma hjá þér án þess að þurfa að hoppa yfir á aðra síðu. 

1. Farðu í Valmyndina -> Stillingar -> Netbeiðnir -> Sýnileiki.

2. Skrollaðu niður þangað til þú finnur "Tengingar".

3. Afritaðu kóðabútinn og bættu honum við inn á heimasíðuna hjá þér.


Sérsniðið útlit netbókana

Ef þú vilt sérsníða útlitið á netbókunum inn á vefsíðunni þinni þá getur þú notað API-inn okkar til þess að framkvæma það. Virkar líkt og að vera með bókunarglugga á vefsíðu nema þetta gerir þér kleift að vera með þitt útlit á netbókunum. 

Hvort sem viðskiptavinur bókar í gegnum þína eigin vefsíðu, á Noona appinu eða á Noona.is þá lenda allar netbókanirnar inn á Noona HQ dagatalinu þínu. 


Ekki hika við að hafa samband við okkur ef að þú lendir í vandræðum ❤️