Tengja Google Calendar við Noona HQ

Til þess að tengja Noona HQ dagatalið þitt við Google Calendar þá byrjar þú á því að fara í Valmyndina, þrjú stirkin uppi í vinstra horninu, -> Stillingar -> Viðbætur.

Þar smellir þú á "Tengja dagatal" undir Google Calendar.

Við það ætti gluggi að opnast þar sem hægt er að skrá sig inn á Google aðganginn sinn.

Þegar að netfangið hefur verið valið koma upp þrír valmöguleikar um hvaða upplýsingar á að tengja:

  1. Tímabókanir í Noona HQ birtast í Google Calendar
  2. Frítímar í Noona HQ birtast í Google Calendar
  3. Viðburðir í Google Calendar birtast sem frítímar í Noona HQ

Þegar að þú hefur ákveðið hvaða upplýsingar þú vilt tengja á milli er einfaldlega smellt á Staðfesta og þá er allt klárt ✨

 Mikilvægt er að skrá sig inn á Noona HQ með sínu eigin netfangi til þess að tengja sitt dagatal (þ.e. ekki vera skráður inn t.d. með sameiginlegu netfangi stofunnar).

Gott er að hafa í huga að til þess að tímar frá Noona HQ dagatalinu fari yfir í Google calender þarf haka í "Noona" undir "My calendars" sem er staðsett vinstra megin í Google calendar :)


Sama á við þegar viðburður er stofnaður í Google Calendar og þú vilt að hann fari yfir í Noona HQ, þá þarftu að velja Noona dagatalið inni í viðburðinum sjálfum.


Eins og alltaf, ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna 💛