Að búa til Coupon kóða

Hægt er að stofna Coupon kóða (afsláttarkóða) fyrir viðskiptavini sem hægt er að nýta í gegnum netsölu, eTags og Kioskana. 

Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is

1. Farðu í Promotions > Coupons

2. Smelltu á Create One

3. Stillingunum er stillt upp í fjóra hluta
 - Basic Info 
 - Limitations
 - Redemptions
 - Time Settings

4. Undir Basic Info þarftu að fylla út öll þrjú svæðin
 Code : Þú getur annað hvort búið til þinn eigin afsláttarkóða eða látið kerfið búa til handahófskenndann kóða með því að smella á hnappinn hægra megin við reitinn. 
 Name : Nafn á afsláttarkóða sem birtist í körfu viðskiptavinar og á kvittun
 Description : Lýsing á afsláttarkóða sést eingöngu í innra kerfinu og er ekki eitthvað sem birtist notanda. 

5. Undir Limitations velur þú hvernig þú vilt takmarka kóðann. 
 Coupon Item : Ef það er búið að stofna Coupon Item þá er það tengt við afsláttarkóðann hér. Hægt er að skoða betur notkun á Coupon Item í þessari hjálpargrein hér
 Locations : Ef það eru fleiri en ein staðsetning þá er hægt að láta kóðann bara virka á ákveðnum staðsetningum. 
 Customer : Hægt er að tengja afsláttarkóðann við ákveðinn viðskiptavin. 

Til að hægt sé að velja þessar takmarkanir, Coupon Item, Location og Customer,  þá þarf þetta að vera nú þegar til í kerfinu.

6. Undir Redemptions skilgreinir þú hversu oft má nota afsláttarkóðann og hvaða afslátt hann veitir. 
 Max redemption : Skildu reitinn eftir auðann ef afsláttarkóðinn má nota ótakmarkað.
 Percent off : skilgreindu hversu mikinn prósentuafslátt kóðinn á að veita. 

7. Undir Time Settings getur þú stillt gildistíma afsláttarkóðans.
 Active from > Active to : Ef kóðinn á bara að gilda yfir ákveðið tímabil, eina helgi, viku eða mánuð þá er það stillt hér. 
 Weekdays active : Hér er hægt að stilla afsláttarkóðann þannig að hann virkar bara á ákveðnum vikudögum. 
 Active Hours : Hér er hægt að stilla afsláttarkóðann þannig að hann virkar bara á ákveðinni tímasetningu, milli 16-18 sem dæmi.