Hvernig byrja ég að birtast á Noona?

Að birtast á Noona er frábær leið til þess að spara bæði þér og viðskiptavinum þínum tíma sem og að auka sýnileika þinn enn frekar. Í þessari hjálpargrein förum við yfir helstu skrefin til þess að þú getir byrjað að birtast á Noona.

Það eru þrjár leiðir til þess að birta Noona prófílinn þinn.

  • Á þinni eigin vefsíðu
  • Í Noona appinu
  • Á vefnum noona.is

Áður en þú byrjar að setja upp netbeiðnir er best að klára eftirfarandi:

  • Setja upp allar þjónustur - hér er hjálpargrein sem fer yfir það.
  • Setja upp alla starfsmenn - hér er hjálpargrein sem fer yfir það.
  • Setja upp vinnutíma í dagatalið - hér er hjálpargrein sem fer yfir það.

Netbeiðnir

Þú stillir allt sem viðkemur netbókunum undir netbeiðnir.

  1. Þú byrjar á því að fara undir valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
  2. Næst ferður undir netbeiðnir og smellir á setja upp.
  3. Að lokum smellirðu á setja upp netbeiðnir og ferð í gegnum skrefin hér að neðan.

Prófíll fyrirtækis

Þú byrjar á því að velja Netbeiðnir og fylgja skrefunum þar. Fyrsta skrefið er prófíll fyrirtækis. Þar er hægt að stilla útlitið á þínu fyrirtæki á Noona, t.d. er sniðugt að setja inn prófílmynd, flotta lýsingu og myndir af rýminu sem forsíðumyndir.

Hér eru einnig nokkur praktísk atriði stillt eins og staðsetning og símanúmer fyrirtækisins.

Hérna eru upplýsingar varðandi hvernig forsíðumyndirnar koma út á prófílnum:

  Hafðu mikilvægan texta og myndefni innan öryggissvæðinsins (1920 x 652 px) til að tryggja að það birtist rétt á mismunandi skjástærðum.

  Fyrir eina forsíðumynd notaðu 1920 x 1080 px (16:9 aspect ratio).
          Fyrir tvær eða fleiri myndir notaðu 1024 x 768 px (4:3 aspect ratio).

Undir "Tegund" er hægt að stjórna því í hvaða flokkum þú ert að birtast á noona.is og í Noona appinu (þú getur einnig smellt hér til þess að læra meira um flokkana).

Undir prófíl fyrirtækisins getur þú einnig stillt hvernig opnunartímarnir þínir birtast á Noona. 
ATH: þetta breytir því ekki hvenær viðskiptavinir geta bókað, það er stillt með frítímum og vinnutíma.

Smellir síðan á vista og áfram og ferð í næsta skref...

Bókunarstillingar og öryggi

1. Upplýsingar viðskiptavina sem bóka á netinu

Hvaða upplýsingum viltu safna frá viðskiptavinum sem bóka á netinu? Nafn og símanúmer er alltaf nauðsynlegt en þú getur einnig krafist þess að fá netfang, kennitölu og bílnúmer ef við á. Við mælum með að bæta við netfanginu þar sem þá fær viðskiptavinurinn staðfestingar tölvupóst þegar hann klárar bókunina sína.


2. Fyrirvarar

Hversu langan fyrirvara þarftu fyrir bókanir, afbókanir og tilfærslu á bókunum? Þetta er eitthvað sem þú stillir undir "Fyrirvarar" en getur breytt hvenær sem er :)


3. Varúðarráðstafanir

Að lokum eru nokkrar auka stillingar sem hægt er að nýta sér:

  • Margar þjónustur í hverri tímabókun:
    Þá getur viðskiptavinurinn t.d. valið að bóka herraklippingu og barnaklippingu í einni bókun.

  • Fá tölvupóst um bókanir:
    Þá fær netfangið sem fyrirtækið er skráð með tölvupóst í hvert skipti sem bókun er gerð, færð eða afbókuð.

  • Sleppa auðkenningu í gegnum síma:
    Þá þurfa viðskiptavinir ekki að slá inn staðfestingarkóða til þess að staðfesta að rétt símanúmer hafi verið skráð.

  • Samþykktarferli fyrir bókanir:
    Þá koma bókanir inn sem beiðnir í stað bókanna og þú velur hvort þú viljir samþykkja eða hafna beiðninni. Meira um það hér.

  • Leyfa bókanir yfir afbókaða tíma:
    Þá geta aðrir viðskiptavinir bókað yfir tímann sem var afbókaður. 

  • Leyfa skráningu á biðlista:
    Ef viðskiptavinir finna ekki lausan tíma geta þau skráð sig á biðlista.

Þjónustur, starfsmenn og svæði

Hér getur þú stillt hvaða þjónustur, starfsmenn og svæði eru að birtast í netbeiðnum (netbókunum) hjá þér. Ef þú ert ekki búin að stofna þjónusturnar og/eða starfsmennina getur þú lesið nánar um það hér fyrir neðan...

Þjónustur
Stofna starfsmenn

Sýnileiki og tengingar

Næst förum við yfir hvar þú vilt geta tekið við netbókunum.

1. Sýnileiki

Ef þú vilt að viðskiptavinir geti fundið þig á Noona markaðstorginu þá hakar þú í "Birtast í leitarniðurstöðum í Noona appinu og á vefnum".



2. Vefslóð

Hér finnur þú slóðina sem viðskiptavinir geta bókað í gegnum. Þú getur stjórnað því hver hlekkurinn þinn er.


3. Tenging við vefsíðu

Hér getur þú fengið iFrame kóða til þess að taka við bókunum í gegnum vefsíðuna þína.


4. Staðfesting
  • Staðfestingarskilaboð: Þessi skilaboð verða sýnileg á staðfestingarsíðunni eftir bókun og innifalin í staðfestingarpóstinum sem viðskiptavinir þínir fá eftir að bókun þeirra hefur verið staðfest.

  • Slóð á staðfestingarsíðu: Valkvæm vefslóð sem opnast í nýjum glugga þegar viðskiptavinur bókað tíma. Hentugt ef þú vilt koma einverju á framfæri eða tengja bókanir við Google Analytics og Facebook Pixel. Athugið að pop-up gluggar virka ekki í iframe. Þessi stilling hefur því bara áhrif á Noona markaðstorgið.

Lokaskrefið

Nú þarftu bara að velja "Virkja prófíl" og þá er allt klárt! 🚀🎉


Þá er allt klárt! En ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallið ef að einhverjar spurningar vakna 💛