Skráðu þig inn á hq.salescloud.is
1. Farðu í Settings > Integrations og finndu þar Teya PosLink
2. Smelltu á Install > Install > Finish Installation
3. Þá kemur upp Teya auðkenning en hér þarf að setja inn netfangið sem er skráð á Teya samningnum.

4. Nú ætti að koma póstur með 6 stafa kóða sem þarf að setja inn til auðkenningar. Þegar það er komið þá ættir þú að lenda á "Payment methods" inn í SalesCloud.
5. Smelltu á "Add Payment Method" > leitaðu eftir Teya PosLink
6. Neðst á skjánum ættir þú að sjá tvo tóma reiti, í þeim efri ættir þú að sjá nafn samningsaðila eða veitingastaðar og í þeim neðri ættu að koma þeir posar sem eru í boði á þeim samning. Veldu viðeigandi upplýsingar.
Gott er að setja í "Title" seinustu 3 tölurnar á serial númerinu svo auðvelt sé að átta sig á hvaða posa er verið að tengja í sölukerfinu
7. Nú þarf að fara í SalesCloud POS appið, posinn ætti að vera kominn undir "Pay hnappinum" en til að bæta honum við sem FastPay hnappi þá þarftu að fara í Settings > General og haka í Teya PosLink Fast Pay. Ef að annar færsluhirðir er settur upp sem FastPay þá þarf að afhaka hann.