Breyta verði á þjónustum

Hvernig breyti ég verði á þjónustu?

Fylgdu þessum skrefum til þess að breyta verði á þjónustu:

1. Farðu í Valmyndina -> Þjónustur.

2. Smelltu á þjónustuna sem þú vilt breyta verðinu á.

3. Uppfærðu verðið

4. Vistaðu breytingarnar.

Hvaða áhrif hefur verðbreytingin á bókanir?

Þegar verðinu er breytt í þjónustulistanum þá uppfærist verðið sjálfkrafa á öllum bókunum í kerfinu, þar á meðal bókunum sem voru gerðar áður en verðinu var breytt.

Það eru tvær undantekningar á þessu:

  • Bókanir sem hafa verið fyrirframgreiddar halda því verði sem viðskiptavinurinn greiddi. 
  • Bókanir sem hafa verið gerðar í gegnum markaðstorg Noona fyrir verðbreytinguna munu halda eldra verði EF fyrirtækið býður upp á valkvæmar fyrirframgreiðslur.

Þegar viðskiptavinur bókar í gegnum markaðstorgið hjá fyrirtæki með valkvæma fyrirframgreiðslu verður til óafgreidd greiðsla sem birtist í Noona-appi viðskiptavinarins. Viðskiptavinurinn getur þá gengið frá greiðslunni hvenær sem er fram að bókuðum tíma.

Til þess að bjóða upp á þennan möguleika er reikningur útbúinn á bakvið tjöldin um leið og bókunin er gerð og verðið á henni læst. Ef þjónustan hækkar í verði eftir að bókunin var gerð heldur bókunin því verðinu sem var í gildi þegar viðskiptavinurinn bókaði, jafnvel þótt greiðslan hafi ekki enn verið framkvæmd.


Ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallið ef að einhverjar spurningar vakna 💛