WooCommerce tenging við Noona HQ

Tengdu Noona HQ við WooCommerce og fáðu sölurnar inn í birgðahaldið í rauntíma

Ef þú ert að nota netverslunarvirkni hjá WooCommerce og sölukerfi Noona þá getur þú nú tengt kerfin saman á einfaldan hátt þannig að salan í Noona uppfæri meðal annars birgðastöðuna í WooCommerce. Þetta ætti því að geta sparað þér tímann og umstangið við að uppfæra söluupplýsingar í búðinni og netversluninni. 

Helstu eiginleikar samþættingarinnar

Upplýsingar um vöruheiti, vörulýsingar, verð, virðisauka, birgðir, vörumyndir og vöruflokka í sölukerfi Noona uppfærast í rauntíma inn í WooCommerce og upplýsingar um birgðastöðu og viðskiptamann uppfærist í rauntíma frá WooCommerce yfir í Noona HQ. 

Hvað gerir viðbótin?

  • Flytur vörur frá Noona HQ yfir í WooCommerce.
  • Samstillir pöntunarstöður úr WooCommerce yfir í Noona HQ.
  • Býður upp á handvirka samstillingu fyrir vörur og pantanir.
  • Styður webhook-a fyrir sjálfvirkar uppfærslur þegar breytingar verða.

Helstu kostir

  • Minni handavinna og færri innsláttarvillur.
  • Betri samræming gagna milli vefverslunar og Noona HQ.
  • Skýr yfirsýn yfir tengingu og samstillingarstöðu.

Ef þú ert með netsölu hjá WooCommerce og notar sölukerfi Noona þá einfaldar samþættingin utanumhald sölunnar þinnar heilmikið. Þegar þú selur vöru í sölukerfi Noona geturðu verið viss um að birgðirnar séu réttar í netsölunni! 

Hver getur notað tenginguna?

Forkröfur þess að þú getir tengt sölukerfi Noona við WooCommerce er að þú sért með netsöluvirkni hjá WooCommerce og í sölukerfinu hjá Noona.

Nánari upplýsingar um verð, uppsetningu og framkvæmd tengingar fást með því að hafa samband við [info@addons.is].


Athugið að Noona sér ekki um tenginguna sjálfa né verðlagningu hennar. Allar fyrirspurnir varðandi tenginguna, kostnað og tæknilega útfærslu skulu berast beint til þjónustuaðila á ofangreindu netfangi.

Tengja WooCommerce við Noona HQ

Hér að neðan getur lesið, skref fyrir skref, hvernig þú tengir WooCommerce við sölukerfi Noona.

Skref fyrir skref:

  1. Skráðu þig inn á Noona HQ aðganginn þinn.
  2. Smelltu á fellilistann uppi í hægra horninu. 
  3. Smelltu á „Stillingar“.
  4. Undir „Aðgangur“, veldu „Viðbætur“.
  5. Finndu WooCommerce appið og smelltu á „Tengja“
  6. Veittu WooCommerce aðgang með því að smella á „Samþykkja“ takkann.
  7. Nýr gluggi með WooCommerce ætti að opnast. Settu inn slóðin á vefsíðunni þinni og smelltu á „Áfram“.  
  8. Nú opnast nýr gluggi. Þú þarft ekki að gera neitt nema að bíða í nokkrar sekúndur. Þegar síðan opnast aftur á Noona HQ er allt klárt!

Hvernig fjarlægi ég tenginguna?

Þú fjarlægir tenginguna við WooCommerce með því að fara undir Stillingar --> Aðgangur --> Viðbætur og smella á ruslatunnuna við WooCommerce appið.

Ef það er engin ruslatunna og það stendur Tengja  þá er appið ekki lengur tengt.


Eins og alltaf, ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna 💛