Setja upp sjálfvirkar skýrslur í SalesCloud

  1. Skráðu þig inn á admin.salescloud.is.
  2. Farðu í Dashboard.
  3. Þú getur búið til sérstakt Dashboard fyrir mánaðarlegar skýrslur með því að smella á reitinn við hliðina á DEFAULT og stofnað nýtt með því nafni sem þú vilt.
  4. Settu upp Dashboard með þeim skýrslum sem þú vilt hafa með.
    Sjá leiðbeiningarnar Hvernig er Dashboard sett upp fyrir nánari upplýsingar um uppsetningu.
  5. Þegar Dashboard er tilbúið skaltu smella á Scheduled Reports hægra megin á skjánum.
    Þá opnast gluggi hægra megin þar sem þú stillir sjálfvirka skýrslusendingu:
  • Email
  • – Sláðu inn netfang viðtakanda.
  • Frequency
  • – Veldu hversu oft skýrslan á að berast: daglega, vikulega eða mánaðarlega.
  • Time
  • – Veldu hvenær skýrslan á að vera send.
    Athugaðu að tímasetningin ræður einnig tímabilinu sem gögn skýrslunnar ná yfir. Ef dagleg skýrsla er til dæmis send kl. 09:00 nær hún yfir gögn frá kl. 09:00 daginn áður til kl. 09:00 þann dag.
  • Channel
  • – Hér velur þú hvaða sölurásir eiga að vera með í skýrslunni. Þessar stillingar ráða innihaldi skýrslunnar, óháð því hvaða sölurásir eru valdar á Dashboardinu sjálfu.
Smelltu að lokum á ADD RECIPIENTS.