Þegar það er verið að stofna viðskiptavin sem á að geta sett í reikning þá þarft að merkja hann sem Invoiceable Þessi skilgreining gerir viðskiptavininum kleift að klára pantanir í POS kerfinu án þess að greiða fyrir hana á staðnum. Hver pöntun sem hann leggur inn er skráð í Admin, og ef valkosturinn Deliver Invoice er valinn fær hann afrit af reikningnum fyrir hverja pöntun sem hann gerir.
Það er mikilvægt að hafa í huga að þegar það er sett í reikning þá stofnast ekki krafa í heimabanka hjá viðskiptavin nema að það sé búið að klára bankatengingu við Íslandsbanka eða Landsbankann.
Einnig er gott að hafa í huga að það þarf að setja inn reikningsupplýsingar í kerfið ef þú vilt að þær komi á reikninginn sem stofnast í kerfinu.
Það er gert með því að :
1. Fara í Company > Organization
2. Smellir á Fyrirtækið og Manage
3. Þar undir General er reitur fyrir "Bank Account"
Um leið og upplýsingarnar eru settar þar inn þá koma þær upp á reikning sem er sendur á viðskiptavin.