Tengja peningaskúffu í fyrsta skipti

Það er mikilvægt að hafa í huga að peningaskúffan tengist við spjaldtölvuna í gegnum Bluetooth. 

Til að SalesCloud POS appið þekki skúffuna þarftu fyrst að para hana við spjaldtölvuna í Bluetooth-stillingunum. Farðu í Bluetooth-stillingar spjaldtölvunnar (inn í Settings) og tengstu við tiltæka kassaskúffu. Heiti tækisins mun líkjast „Star mPop xxx“.

Ef fleiri en ein kassaskúffa birtist geturðu fundið heiti/númer tækisins á miðanum neðst á kassaskúffunni

Þegar Bluetooth pöruninni er lokið:

  1. Opnaðu SalesCloud POS appið.
  2. Farður í þrjá punktana efst í hægra horninu og veldu Connect to Printer.
  3. Þú ættir nú að sjá Star mPop tækið þitt í nýjum pop-up glugga.
  4. Haltu fingrinum á tækinu og veldu Connect.
  5. Endurtaktu fyrra skref og veldu Remember.
  6. Endurtaktu skrefið einu sinni enn og veldu Set as Default.

Að lokum:

  1. Farðu aftur í valmyndina.
  2. Skráðu þig út og inn í POS appið tvisvar sinnum.
  3. Prófaðu prentarann með því að fara aftur í valmyndina og velja Open Cash Drawer.

Ef kassaskúffan opnast hefur pörunin tekist og kassaskúffan er nú tengd við POS kerfið þitt.