Hvernig er Dashboard sett upp

Þetta eru leiðbeiningar um hvernig þú getur sett upp þitt eigið Dashboard í SalesCloud

Á Dashboard síðunni getur þú fundið mismunandi skýrslur og upplýsingar sem gefa þér ítarlegri innsýn í reksturinn þinn. Þú getur valið úr mörgum mismunandi valmöguleikum til að birta þau gögn sem henta þér best hverju sinni t.d. vörur, pantanir, áskriftir og greiðslur.

  1. Innskráðu þig inn á admin.salescloud.is
  2. Veldu Dashboard í valmyndinni vinstra megin.
  3. Dashboard valmyndinn byrjar alltaf með grunn mælaborði (Dashboard) sem þú getur svo aðlagað að þínum þörfum.
    Ef þú vilt frekar búa til alveg nýtt Dashboard fyrir eitthað sérstakt, þá einfaldlega smelliru á kassan með plúsnum hægramegin við DEFAULT mælaborðið, og velur svo gott nafn fyrir þetta nýja.
  4. Efst í mælaborðinu, undir hausnum á valmyndinni eru stillingar fyrir gögnin í mælaborðinu fyrir tímabil (Period), Channels og tíma dags (Time of Day) sem þú getur svo síað eftir. Til dæmis, ef þú vilt bara sjá netsölur fyrir daginn í gær, þá getur þú valið í Period, Yesterday og svo í Channels, Online og Time of Day sem All day.
  5. Hver og einn partur (box) af mælaborðinu hefur valmöguleika fyrir niðurhal og stillingar í efra hægra horninu.
    1. PDF er til að sækja PDF skjal.
    2. XLS er til að sækja Excel/ Töluleg gögn.
    3. Örin upp er til að færa þetta tiltekna box upp í mælaborðinu.
    4. Örin niður er til að færa boxið niður í mælaborðinu.
    5. Örvakrossinn er til að draga boxið til og færa á nýjan stað.
    6. Tannhjólið er til að opna stillingar fyrir þetta box.
    7. Örvahringurinn er til að endurhlaða gögnin í boxinu.
  6. Til að bæta við boxum við mælaborðið, þá smellir þú á bleika plúsinn í efra hægra horninu á mælaborðinu. Þú getur svo notað leitarstikuna eða skrunað niður til að finna þær upplýsingar sem þú vilt birta í mælaborðinu. Þegar þú hefur bætt við boxi, þá þarf að endurhlaða síðuna svo það birtist.