Samþykkja/hafna tímabókunum

Það er hægt að stilla kerfið þannig að þú samþykkir tímabókanir áður en þær eru staðfestar í dagatalið. Það er gert með því að fara í stillingar → öryggi → varúðarráðstafanir og haka í „samþykktarferli fyrir bókanir“.

Nú ertu búin að kveikja á þessari stillingu fyrir aðganginn en þar sem hver starfsmaður getur valið hvort hann þurfi að hafa þessa stillingu á eða ekki þá þarf líka að kveikja á þessu hjá hverjum starfsmanni.

Til þess að stilla þetta á starfsmanninn sjálfan þá ferðu í valmyndina -> starfsmenn -> smellir á tiltekinn starfsmann -> netbeiðnir og hakar í samþykktarferli fyrir bókanir.


Þá er þetta komið og beiðnin sem kemur inn í tilkynningabjölluna við bókun mun líta svona út:

Viðskiptavinurinn er látinn vita að beiðni um bókun hafi verið send í dagatal seljanda og fær síðan sms-skilaboð þegar henni hefur verið samþykkt eða hafnað


SMS - tilkynningarnar sem viðskiptavinurinn fær líta svona út:

Tími samþykktur:

Tíma hafnað:


Ekki hika við að heyra í okkur í gegnum spjallbúbbluna í hægra horninu ef einhverjar spurningar vakna 💛