Skrópvörnin er einföld leið til að fækka skrópum og auka tekjur en hún gerir þér kleipt að senda rukkun í heimabanka á viðskiptavini sem hafa skrópað í bókaðan tíma.
Þegar þú hefur sett upp skrópvörnina inni á Noona HQ aðgangnum þínum getur þú byrjað að senda út skrópkröfur.
Áttu eftir að setja upp skrópvörnina? Smelltu hér til þess að lesa hvernig það er gert ⚡️
Hvernig lítur skrópvörnin út fyrir viðskiptavininn?
Um leið og skrópvörnin er virk munu viðskiptavinir þurfa að samþykja notkun skrópgjalda þegar þau panta tíma hjá þér í gegnum Noona. Einnig munu viðskiptavinir þurfa að setja inn kennitöluna sína til þess að klára bókunina. Þannig hefur þú allar upplýsingar sem þú þarft til þess að senda út skrópkröfu.

Ef að þú ert með staðlaða SMS áminningu mun bætast við í lok skilaboðanna "Ath. skrop getur leitt til gjalds"

Hvernig sendi ég út kröfuna og hvað er hún há?
Þú ræður alltaf hvort þú sendir út skrópkröfu og hversu há hún á að vera.
Byrjaðu á því að smella á tímann --> Mæting --> Skrópaði --> "Stofna skrópkröfu".

Við það kemur upp gluggi þar sem þú velur hversu hátt hlutfall af virði tímans þú vilt rukka en þú getur einnig tekið úr hakið "nota hlutfall af verði bókunar" og notast við frjálsa upphæði í staðin.


Ef þú vilt merka tímann sem skrópaði en ekki senda út skrópkröfu þá getur þú smellt á 'hætta við'.
Þegar skrópkrafan hefur verið send út fær viðskiptavinurinn þessa SMS tilkynningu til sín (nema hakið sé tekið úr "Senda SMS tilkynningu um kröfu):

Hvernig felli ég niður skrópkröfu?
Ef það kemur í ljós að það var skiljanleg ástæða fyrir skrópinu, eða að um misskilning var að ræða getur þú alltaf fellt niður skrópkröfur. Smelltu hér til þess að lesa um hvernig hægt er að fella niður skrópkröfu.
Hvernig sé ég stöðuna á skrópkröfunum?
Þú getur séð stöðuna á þeim skrópkröfum sem þú hefur sent út með því að fara í valmyndina > skrópvörn. Ef krafan sem þú ert að leita að birtist ekki strax gæti verið að þú þurfir að breyta tímabilinu sem er verið að skoða.

Smelltu hér til þess að læra meira um stöðu skrópkrafa.
Hvernig birtast skrópkröfur á skýrslum?
Undir Skýrslur > Skrópgjöld er hægt að finna allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir bókhaldið um greiddar skrópkröfur.

Hvað tekur langan tíma að stofna skrópkröfuna?
Um leið og þú sendir út skrópkröfuna tekur Inkasso við boltanum og stofnar skrópkröfuna. Það tekur vanalega um 6 mínútur.
Hver er gjalddaginn og eindaginn?
Þegar skrópkafa er stofnuð þá er eindaginn settur á 30 daga og gjalddagurinn í 15 daga, ef við tökum með þann dag sem skrópkrafan er stofnuð.
Hvað kostar að vera með skrópvörnina?
10% þóknun er tekin af hverri greiddri skrópkröfu en það er ekkert fast verð fyrir það að vera með skrópvörnina. Sú þóknun bætist á næsta reikning frá Noona eftir að krafan hefur verið greidd.
Þá er það ekki fleira í bili! Ekki hika við að senda okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna eða tölvupóst á hq@noona.is ef einhverjar spurningar vakna 💙