Það geta komið upp aðstæður þar sem það þarf að endurstilla eldhúsprentarann, sem dæmi ef að prentarinn á í erfiðleikum með að ná neti (grænt blikkandi ljós framan á prentar) þá getur hjálpað að endurstilla hann.
Til að endurstilla Star Micronics mC-Print2 (MCP20) prentara í verksmiðjustillingar og endurstilla samskiptastillingar, skaltu fylgja þessum skrefum:
1. Slökktu á prentaranum með því að nota on/off hnappinn
2. Gakktur úr skugga um að pappír sé í prentaranum
3. Notaðu mjótt og oddhvasst verkfæri, t.d. bréfaklemmu, til að ýta á RESET-hnappinn aftan á prentaranum.
4. Haltu RESET-hnappinum inni og ýttu á POWER-hnappinn framan á prentaranum til að kveikja á honum. Haltu RESET-hnappinum áfram inni.
5. Haltu RESET inni þar til græna Network-ljósið framan á prentaranum byrjar að blikka. Þá máttu sleppa RESET-hnappinum.
6. Ýttu á FEED-hnappinn til að fletta á milli valkosta og velja hvaða samskiptastillingar þú vilt endurstilla, t.d. netstillingar eða Bluetooth, eftir því hvaða útgáfu af MCP20 þú ert með.
7. Haltu FEED-hnappinum inni til að framkvæma endurstillinguna.
8. Bíddu þar til prentarinn prentar út stillingarnar, sem staðfestir að endurstillingu sé lokið.
Mikilvægt: Ekki slökkva á prentaranum á meðan endurstillingin stendur yfir.
Þegar strimillin hefur prentar út stillingarnar þá ætti það að gefa til kynna hvort að prentarinn hafi fengið IP tölu. Ef að strimillinn segir "IP address not obtained" þá er prentarinn ekki að fá internet úr tengi og best er að hafa samband við netþjónustuaðila.