Nú getur þú stjórnað hvort bara þínir kúnnar megi bóka hjá þér á netinu eða líka nýir kúnnar.
Það er nokkuð algengt að fagfólk sem er sérstaklega búið að vera lengi í bransanum sé búið að byggja upp sinn kúnnahóp og hafi ekki tök á því að bæta við nýjum kúnnum.
Með nýrri bókunarstillingu getur þú nú stjórnað því hvort nýir kúnnar geti bókað hjá þér á netinu eða ekki. Þú getur kveikt og slökkt á þessari stillingu eins og þér hentar og þar með getur þú haft meiri stjórn á hvenær þú vilt bæta við nýjum kúnnum í þinn hóp.
Ef þú hefur hingað til ekki verið inn á Noona þá gæti þetta verið tilvalin tími til opna á netbókanir hjá þér.
Hvernig stilli ég þetta?
Hver og einn getur stillt þetta fyrir sig.
- Þú byrjar á því að fara í Valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
- Smelltu á starfsmenn.
- Veldu viðkomandi starfsmann í listanum.
- Nú opnast gluggi hægra megin og þú smellir á netbeiðnir.
- Skrollar niður undir bókunarstillingar.
- Tekur hakið úr leyfa bókanir frá nýjum viðskiptavinum.

Hvernig virkar þetta?
Ef þú leyfir bara viðskiptavinum, sem hafa bókað tíma hjá þér áður, að bóka hjá þér á netinu þá virkar það þannig að þú munt ekki birtast í 'Hvaða starfsmaður sem er' valinu og þegar þú ert valin undir 'fólkið' og viðkomandi er ekki í viðskiptavinalistanum þínum þá er viðkomandi látin vita að þú takir ekki við nýjum kúnnum eins og er.


Þá er það ekki fleira í bili, en ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna💛