Bókanagreining

Bókanagreiningar appið veitir þér ítarlega yfirsýn yfir bókanirnar þínar í lista. Þar með getur þú útbúið þínar eigin skýrslur með sérsniðnum dálkum, síjað eftir því sem þú vilt skoða og tekið út Excel-skrá af gögnunum.



Hvernig virkja ég bókanagreininguna?

  1. Þú byrjar á því að fara í Valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
  2. Ferð undir Skipulag og skrollar neðst niður undir Stillingar.

  3.  Ferð að lokum undir Aðgangur og smellir á Viðbætur.

  4. Þar finnur þú bókanagreininguna og smellir á Tengja.

  5. Að lokum skrollar þú neðst niður og smellir á bláa hnappinn Samþykkja.


Hvar nálgast ég bókanagreininguna?

Þegar þú hefur lokið við að sækja appið fyrir bókanagreininguna þá getur þú nálgast það hvenær sem þér hentar. Það er gert með því að fara í valmyndina, skrolla niður undir viðbætur og smella á bókanagreining. 


Hvernig set ég upp listann

Hægt er að filtera og síja hinar ýmsu upplýsingar sem eru tengdar bókunum. 

  1. Þú byrjar á því að smella á dálkinn undir filters og velja þar annað hvort created at eða starts at eftir því hvort þú viljir skoða tímabókanir eftir því hvenær þær voru stofnaðar eða hvenær tímabókanir fóru/fara fram. 

  2. Næst smellir þú á dálkinn undir dates og velur það tímabil sem þú vilt skoða.

  3. Nú getur þú byrjað að bæta við þeim filterum sem þú vilt skoða. Það er gert með því að velja aftur dálkinn undir filters og velja þar þann filter sem þú vilt bæta við listann.

  4. Næst þarftu að síja út hvaða upplýsingar þú vilt skoða úr þeim filter sem þú valdir. Það er gert með því að smella á dálkinn undir filternum og velja þar annað hvort eitthvað ávkeðið eða allt (sjá mynd hér að neðan). Þegar því er lokið smellirðu á close neðst í felliglugganum.

  5. Ef þú vilt bæta við fleiri filterum fylgirðu aftur skrefi 3 & 4.


Hvaða upplýsingar get ég skoðað?

Filters:
  • Starts at: Sú dagsetning sem tímabókun fer fram.
  • Created at: Sú dagssetning sem tímabókun var stofnuð.
  • Staff:  Sá starfsmaður sem er tengdur tímabókun, hægt að leita eftir viðskiptavinum.
  • Email: Það netfang sem er tengt tímabókun, hægt að leita eftir netföngum.
  • Phone: Það símanúmer sem er tengt tímabókun, hægt að leita eftir símanúmerum.
  • Services: Sú þjónusta sem tengist tímabókun, hægt að síja eftir ákveðnum þjónustum eða öllum.
  • Payment type: Sá greiðslumáti sem var greitt með fyrir tímabókun, hægt að síja eftir ákveðnum greiðslumáta eða öllum.
  • Client group: Sá viðskiptavinahópur sem tengist tímabókun, hægt að síja eftir ákveðnum viðskiptavinahóp eða öllum.
  • New client: Hvort tímabókun sé tengd nýjum viðskiptavin eða ekki, ef síjað er eftir "já" þá eru það viðskiptavinir sem hafa bókað einn tíma ef "nei" þá eru það viðskiptavinir sem hafa bókað fleiri en einn tíma.
  • Origin: Sá staður sem tímabókun var bókuð í gegnum, hægt að síja eftir ákveðnum stað eða öllum.
  • POS status: Segir til um stöðu kortagreiðslu fyrir tímabókun, hægt að síja eftir ákveðni stöðu eða öllum
  • Status: Staða tímabókunar (mætti, afbókaði, skrópaði, afgreitt, engin staða), hægt að síja eftir ákveðni stöðu eða öllum.
  • Invoice status: Staða reiknings (afgreitt, kreditreikningur/endurgreitt/, drög, eyddum reikningum, eyddum drögum), hægt að síja eftir ákveðni stöðu eða öllum.
  • Customised fields: Sérsniðnir reitir sem tengjast tímabókun (þeir reitir sem þú hefur búið til), hægt að síja eftir ákveðnum upplýsingum í sérsniðnum reitum eða öllum.

Hvernig sérsníði ég skýrsluna?

Þú getur sérniðið skýrslurnar eftir þínum þörfum og eftir því hvað þú ert að greina. 

  • Í sumum dálkum er hægt að breyta flokuninni A→Z x Z→A. Það er gert með því að smella á örvarnar við hliðina á flokkunum (sjá hér að neðan).

  • Þú getur srjórnað hvaða filterar birtast í listanum og í hvaða röð með því að smella á column settings sem þú finnur uppi í hægra horninu.

- Þú hakar í þá filtera sem þú vilt að birtast í listanum og hakar úr þeim reitum sem þú vilt að birtist ekki í listanum

- Þú heldur inni punktunum og dregur til þess að breyta röðinni á filterunum.


  Sú filtering og síjur sem þú hefur stillt eru vistaðar þannig að ef þú ferð út úr bókanagreiningunni og opnar síðan aftur seinna þá eru þær stillingar enn inni.  


Endurstilla

Hreinsa allt út

Smelltu á rauða hnappinn sem á stendur clear til þess að hreinsa út alla filtera og síjur sem þú hefur stillt. Hnappurinn lítur svona út:


Hreinsa út ákveðna filtera

Smelltu á X á þeim filter sem þú vilt hreinsa út. 

Dæmi: ef ég ætla að eyða út filternum 'status' þá smellirðu á X-ið í þeim dálk. 


Hreinsa út ákveðnar síjur

Smelltu fyrst á þann filter sem þú villt eiga við og síðan smellirðu á X á þeim síjum sem þú vilt eyða út. 


Hvernig hleð ég niður skýrslunni?

Þegar þú vilt hlaða niður skýrslunni þá smellirðu á Export sem þú finnur uppi í hægra horninu. Skýrslunni er þá hlaðið í tölvuna þína og þú getur þá í framhaldinu opnað hana inn í Excel-skrá fyrir frekari greiningu. 

Skýrslan sem þú hleður niður er með sama sniðmáti og þú varst með stillt þegar henni var hlaðið niður. 


Notkunarmöguleikra

 Bókanagreininguna er hægt að nota fyrir mismunandi notkunartilvik. Hér eru dæmi um hvað gæti verið sniðugt að nota það í:

  • Yfirsýn yfir fjölda bókana, afbókana og skrópa.
  • Skoða hvaðan bókanir eru að koma.
  • Listi yfir tímabókanir hjá viðskiptavinum sem tilheyra ákveðnum viðskiptavinahóp.
  • Skoða þær tímabókanir sem á eftir að stofna reikning fyrir.
  • Greina frammistöðu starfsmanna.
  • Fylgjast með nýjum viðskiptavinum.
  • Yfirsýn yfir viðskiptavini sem eru flokkaðir í sérsniðna reiti sem þú hefur stofnað.

... og margt fleira!


Eins og alltaf, ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna 💛