Bókunarhlekkur

Bókunarhlekkur beinir viðskiptavinum þínum beint inn á bókunarsíðuna þína á Noona. Það getur verið sniðugt að nota bókunarhlekkinn til að deila með viðskiptavinum á þínum miðlum. 

Þú getur verið með bæði bókunarhlekk að prófílnum þínum en einnig að einstaka þjónustum.


Hvar finn ég bókunarhlekkinn að prófílnum mínum?
  1. Þú byrjar á því að fara í Valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
  2. Skrollar niður og smellir á Stillingar.
  3. Skrollar niður þangað til þu finnur  Netbeiðnir -> Sýnileiki.
  4. Ferðu undir Vefslóð.
  5. Afritar bláu vefslóðina sem birtist þar undir og bætir henni við á þína miðla.


Hvar finn ég bókunarhlekkinn að tilteknum þjónustum?
  1. Þú byrjar á því að fara í Valmyndina.
  2. Smellir síðan á Þjónustur sem eru undir Skipulag.
  3. Þar semllir þú á þjónustuna sem þu vilt sækja hlekkinn að.
  4. Undir Netbeiðnir getur þú afritað hlekkinn að þessari þjónustu

Þá opnast sér bókunarsíða fyrir þessa þjónustu sem þú getur sent viðskiptvinum. 

Við mælum eindregið með að vera með mynd og lýsingu á þjónustunni þegar þú sendir þeim hlekkinn. Þú getur bætt því við undir þjónustunni -> Netbeiðnir.


Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.