Lokað á netbókanir í borðabókunum

Lokað á einstaka dögum

Ef þú vilt loka fyrir netbókanir á einstaka dögum getur þú einfaldlega farið á tiltekinn dag í dagatalinu

-> smellir á "reglur dagsins" sem er táknið ofarlega fyrir miðju við hliðina á bláa plúsnum 

-> smellir á "breyta" undir "yfirskriftir

-> velur "lokað fyrir netbókanir"

Þá er búið að loka fyrir netbókanir á tilteknum degi.


Lokað á ákveðnu tímabili

Ef þú vilt loka fyrir netbókanir yfir ákveðið tímabil þá stofnar þú nýtt sniðmát fyrir reglusett og getur skýrt það t.d. "Lokað". 

-> Ferð síðan í "+ Bæta við" og stofnar netbókana reglu þar sem er slökkt á netbókunum yfir daginn.

-> Síðan þarf að fara í þrjá punktana hægra megin á reglusettinu og setja regluna á rétt tímabil 


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna eða í tölvupósti á hq@noona.is ef einhverjar spurningar eða pælingar vakna💛