Endurteknar bókanir
Ert þú með fastakúnna sem vilja eiga sinn tíma með ákveðnu millibili? Þá eru endurteknir tímar fullkomnir fyrir þig! 🙌
Þú velur tímann → Smellir á "Endurtaka" → Velur hversu ört endurtekningin er → Velur á hvaða dagsetingu endurtekningunni á að ljúka → Þegar það er komið sérðu hversu margar endurtekningarnar eru → "Staðfesta".


Í hægra horninu á endurteknum tímum kemur upp merki sem gefur til kynna að tíminn endurtekur sig.

Það er hægt að færa og eyða endurteknum tíma eins og venjulegum tíma. Eini munurinn er að núna færðu valmöguleika um hvort þú viljir að breytingin eigi bara við um þennan tíma eða allar framtíðar endurtekningarnar líka.
Að færa endurtekinn tíma:

Að eyða endurteknum tíma:

Ekki hika við að heyra í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, vangaveltur eða athugasemdir. Þú getur sent okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna💛