Þjónustur

Þjónustur er það sem þú bókar viðskiptavini þína í. Sömuleiðis eru þjónustur það sem viðskiptavinir þínir geta valið inni á Noona. 

Þú finnur allt tengt þjónustunum með því að fara í Valmyndina -> velja þjónustur.

Til þess að búa til nýja þjónustu smellir þú á bláa "+ Bæta við" takkann.


  1. Veldu "Ný þjónusta".
  2. Settu inn nafnið á þjónustunni.
  3. Settu inn tegundina á þjónustunni.
  4. Veldu í hvaða lit þjónustan á að birtast á dagatainu með því að smella á bleika hnappinn undir "Litur".
  5. Settu inn tímalengd þjónustunnar.
  6. Settu inn verð þjónustunnar.

Tökum hér dæmi þar sem við ætlum að bæta við 30 mínútna herraklippingu sem kostar 10.000 kr:



Yfirflokkar

Við mælum með því að setja inn yfirflokka fyrir þjónustur. Það auðveldar bæði viðskiptavinum að fara í gegnum þjónustulistann þinn á Noona og það er betra skipulag fyrir þig. Til þess að búa til yfirflokk byrjar þú aftur á því að smella á bláa "+Bæta við" takkann.

Næst smellir þú á "Nýr flokkur" -> setur inn nafn á yfirflokknum -> lýsingu (ekki nauðsynlegt)

Tökum hér dæmi þar sem við búum til yfirflokkinn "Klippingar" og setjum bæði dömuklippingu og herraklippingu í hann:


Tegundir af þjónustum

Það er hægt að búa til þrjár tegundir af þjónustum inni í Noona HQ.

Engin skörun

Hefðbundin þjónusta þar sem þú getur bara tekið við þessum eina viðskiptavin á meðan á þjónustunni stendur.

Hlé á milli atriða

Í þessu tilviki mætir viðskiptavinur í tímann, fer í pásu og á meðan pásunni stendur getur þú tekið við öðrum viðskiptavini. Svo mætir viðskiptavinurinn aftur eftir pásuna að klára seinni hluta tímans. 

Viðskiptavinir geta bókað sér tíma í gatið inni á Noona appinu eða noona.is ef þjónustan er með opið fyrir netbeiðnir.

Valkvæð skörun

Þegar að þjónusta er yfirbókanleg hefur þú pláss hægra meginn við tímann til þess að bóka inn annan tíma.

Viðskiptavinir munu ekki geta bókað sér tíma yfir þennan ef þjónustan er að birtast á Noona appinu eða noona.is, einungis þú getur bókað annan tíma yfir.


Yfirbókanlegar þjónustur að hluta (með gati) eru vinsælar hjá hárgreiðslustofum til þess að setja upp t.d. litun og klipping.


Tökum dæmi hér þar sem við bætum við þjónustunni "Strípur og klipping" þar sem við viljum hafa 30mín fyrir strípur, 45mín í bið og svo aftur 30mín fyrir klippinguna:

Svona mun þá þjónusta sem er með hléi á milli atriða líta út í dagatalinu hjá þér:

og ef einhver bókar síðan klippingu í gatið lítur það svona út:

Hér mun þá Anna mæta í dömuklippingu á meðan Elín bíður með strípurnar í hárinu.

Tegund þjónustu

Þjónustu-tegundir eru mikilvægur þáttur í að auka sýnileika þinn á Noona markaðstorginu. Með því að merkja þjónusturnar þínar með þjónustu-tegundum, getur þú auðveldlega náð til notenda sem eru að leita að þjónustu sem þú bíður upp á. Þetta er sérstaklega mikilvægt í hraðleitinni, sem er aðgengileg í miðjunni neðst í Noona appinu.

Hraðleitin er mjög vinsæl meðal Noona notenda, sem nota hana til að finna fyrirtæki í grendinni sem bjóða upp á þá þjónustu sem þeir eru að leitast eftir. Þeir geta einnig skoðað lausa tíma með stuttum fyrirvara, sem gerir þeim kleift að bóka tíma hjá þér á einfaldan og þægilegan hátt.



Þjónustu-tegundir hjálpa okkur að vita hvaða þjónustur þú bíður upp á. Þannig ef þú merkir allar þínar þjónustur með þjónustu-tegund, gerir þú það mun líklegra að Noona notandi finni þitt fyrirtæki í hraðleitinni þegar hann leitar eftir þjónustu sem þú bíður upp á.

Tökum dæmi:

Þjónustan þín heitir t.d. "Litun á augnhár og brúnir", en ég leita eftir "litun og plokkun" í hraðleitinni. Ef þú ert búin að merkja þjónustutegundina á þjónustuna þína, getum við bent notandanum á þitt fyrirtæki þar sem þjónustutegundin tengir saman leit notandans við þjónustuna þína. Ef þú værir ekki búin að merkja þjónustutegundina, er það ekkert víst að við myndum fatta að "Litun á augnhár og augabrúnir" sé svipuð þjónusta og "litun og plokkun".

Þú getur breytt þjónustutegundum á þjónustu þinni með því að fara í stjórnstikuna → þjónustur → velja þjónustu úr listanum → tegund þjónustu.



Verð

Við mælum með því að setja inn verð fyrir þjónustur, en það er ekki nauðsynlegt.

Verðbil

Í sumum tilvikum henta verðbil betur en ákveðið verð. Það getur t.d. verið verðmunur á hvað strípur kosta eftir því hversu sítt hár viðskiptavinurinn er með.  Þú getur sett inn verðbil með því að:

  1. Smella á þjónustuna sem á að hafa verðbil.
  2. Velja "Bæta við verði".
  3. Breyta í verðbil.
  4. Setja lægsta mögulega verð í "Verð frá" og hæsta mögulega verð í "Verð til".






Sér verð fyrir ákveðna viðskiptavini

Í sumum tilvikum viljum við hafa ákveðna viðskiptavini á sérkjörum. Þetta geta t.d. fyrir eldriborgara eða fjölskyldumeðlimi. Ef þú ert að nota sölukerfi Noona mælum við með því að nota viðskiptavinahópa til þess að gleyma ekki þessum sérkjörum.


Pása eftir þjónustu

Þú getur bætt við pásu á eftir þjónustu ef þú vilt sjá til þess að allt sé klárt þegar að næsti viðskiptavinur mætir. Pásur eru t.d. algengar á eftir nuddi. Viðskiptavinir sjá ekki tímalengd þjónustunnar með pásunni inni heldur einungis tímann fyrir pásu. Þannig ef þú býður upp á 60mín nudd en þarft 10mín á milli viðskiptavina munu viðskiptavinir sjá tímann sinn sem 60mín en 70mín bókast sjálfkrafa inni á dagatalinu hjá þér.

Það eina sem þú þarft að gera til þess að bæta pásu inn í þjónustuna er að bæta við mínútu fjölda hjá "hlé eftir bókun".


Tökum hér dæmi þar sem við búum til 50mín nudd tíma með 10mín pásu eftir:

Svona mun tíminn þá líta út á dagatalinu:

Við ráðleggjum líka að bæta við mynd og lýsingu við þjónustuna. Þú getur sett það inn um leið og þú hefur kveikt á netbeiðnum. Það er gert með því að smella á þjónustuna → Neitbeiðnir → "Breyta mynd" til að setja inn mynd og svo bæta við texta undir "Lýsing".


Ekki hika við að hafa samband við okkur ef að einhverjar spurningar vakna 🧡