Setja opnunartíma í SalesCloud

Til að stilla opnunartíma á netsölu þarf að fylgja eftirfarandi skrefum : 

  1. Farðu í Company → Locations.

  2. Veldu staðsetninguna sem þú vilt breyta.

  3. Smelltu á Opening hours for online ordering.

  4. Veldu fyrst hvaða regla á að gilda um opnunartíma staðsetningarinnar:

    • Location is open based on opening hours – Netverslunin er aðeins opin á skilgreindum opnunartíma staðsetningarinnar.

    • Location is always open – Netverslunin er opin allan sólarhringinn, en viðskiptavinir geta aðeins valið afhendingartíma innan skilgreinds opnunartíma staðsetningarinnar.

    • Location is always closed – Netverslunin er lokuð.

  5. Stilltu opnunartíma fyrir hvern vikudag. Ef opnunartími er sá sami og daginn á undan getur þú einfaldlega smellt á Same as previous weekday.

    • Hægt er að skrá fleiri en eitt tímabil á sama degi með því að smella á + Add another opening hour. Þetta gæti átt við ef netsalan er lokuð milli 14:00 - 17:00 sem dæmi

  6. Þegar þú hefur stillt opnunartímann skaltu skruna neðst á síðuna og smella á Save til að vista breytingarnar.