Setja upp afsláttarreglu í SalesCloud

Það er hægt að setja upp reglur í SalesCloud sem setur upp skilyrði fyrir breytti verði á ákveðnum vörum, skilyrðin geta verið ákveðinn tími eða mögulega tag í kerfinu. Hér eru þau skref sem þarf að fylgja til að setja upp afsláttarreglu : 

  1. Skráðu þig inn á admin.salescloud.is.

  2. Farðu í POS → Discount rules.

  3. Smelltu á + Add discount efst á síðunni.

  4. Í Admin Title skaltu gefa afslættinum lýsandi heiti. Þetta heiti er ætlað til að auðvelda þér að þekkja afsláttarregluna í kerfinu.

  5. Þegar þú hefur sett inn Admin Title birtist Machine name fyrir neðan reitinn. Smelltu á Edit til að breyta því.

  6. Athugaðu að engar tvær afsláttarreglur mega hafa sama Machine name.
    Dæmi: discount_happyhour

  7. Gefðu afslættinum Name. Þetta er heitið sem viðskiptavinurinn sér.

  8. Láttu Sort order vera óbreytt.

  9. Undir Discount type velur þú Product discount.

  10. Undir Order discount conditions getur þú valið mismunandi skilyrði fyrir afsláttinn. Algengustu skilyrðin eru Is POS, Day of the Week og Between Hours.

    Í boði eru eftirfarandi skilyrði:

    • User

    • Product(s)

    • Product type

    • Product attributes

    • Is POS

    • Day of the Week

    • Item title

    • Three for two

    • Order as tag

    • Between Hours

    • Department

    • Category

    • Quantity

    • Unit quantity

    • Unit quantities

  11. Undir Apply to velur þú Is POS. Smelltu síðan á Attach and condition og veldu þau skilyrði sem eiga að gilda fyrir afsláttinn.

Afsláttur af ákveðnum vörum:
Ef afslátturinn á aðeins að gilda fyrir ákveðnar vörur velur þú Product(s) og skilgreinir vöruna í reitnum sem birtist.

Athugaðu að ef fleiri en ein vara er sett í sömu reglu þarf pöntunin að innihalda allar vörurnar til þess að afslátturinn virki. Því er mælt með að búa til eina reglu fyrir hverja vöru.

Afsláttur á ákveðnum vikudögum:
Ef afslátturinn á aðeins að gilda á ákveðnum vikudögum, til dæmis alla þriðjudaga, velur þú Day of the Week og hakar við þá daga sem afslátturinn á að gilda.

Afsláttur á ákveðnum tíma dags:
Ef afslátturinn á aðeins að gilda á ákveðnum tíma, til dæmis Happy Hour frá kl. 16:00–18:00, velur þú Between Hours og skilgreinir tímabilið.

Athugaðu að aðeins er hægt að velja heila klukkutíma, til dæmis 13:00–15:00.

  1. Þegar þú hefur skilgreint öll skilyrðin velur þú Offer type. Þar getur þú valið:

  • kr. – föst afsláttarupphæð

  • % – prósentuafslátt

  1. Ef þú velur % off, slærðu inn prósentuna sem á að veita í afslátt. Til dæmis slærðu inn 20 fyrir 20% afslátt.

  2. Neðst á síðunni getur þú valið hvort afsláttarreglan megi virka samhliða öðrum afsláttum.

  3. Að lokum smellir þú á SAVE DISCOUNT til að vista afsláttarregluna.


Ath! þessar reglur virka bara fyrir sölurkerfið á staðnum en hafa ekki áhrif á netsölu eða eTags.