Þegar þú þarft að endursetja lykilorðið þá er hægt að fylgja eftirfarandi skrefum:
- Opnaðu innskráningarsíðu SalesCloud (admin.salescloud.is)
- Smelltu á Forgot password?
- Stimplaðu inn netfangið á aðgangum þínum í reitinn Username or e-mail address, smelltu svo á E-mail new password
- Síðan mun endurhlaða sig og birta skilaboð að ef netfangið sem þú slóst inn er tengt við aðgang þá mun kerfið senda þér leiðbeiningar í tölvupósti um hvernig á að endursetja lykilorðið.
- Opnaðu innhólfið þitt og smelltu á póstinn frá no-reply@salescloud.is, þar er hlekkur sem þú opnar til að endursetja lykilorðið. (Ath. það getur tekið nokkrar mínútur fyrir tölvupóstinn að berast, eða hann getur endað í Spam möppunni þinni.)
- Hlekkurinn í póstinum mun beina þér á einnota innskráningarsíðu (one-time login). Smelltu á LOG IN til að stilla lykilorðið þitt.
- Breyttu svo lykilorðinu þínu undir Password og endurtaktu það undir Confirm Password smelltu svo á Save neðst á síðunni.
- Ath. Ekki breyta neinu öðru en lykilorðinu þínu.
- Þegar þú ert búinn að breyta lykilorðinu, smelltu þá á Back to SalesCloud Admin hnappinn efst á síðunni.
- Núna er best að skrá sig út og inn aftur.