Hvernig tengi ég Noona HQ við Outlook
Áður en þú byrjar er mikilvægt að þú skráir þig inn á Noona HQ með þínu netfangi svo að þú getir tengt þitt Noona HQ dagatal (þ.e. ekki skrá þig inn t.d. með sameiginlegu netfangi stofunnar).
Áður en þú byrjar er mikilvægt að þú skráir þig inn á Noona HQ með þínu netfangi svo að þú getir tengt þitt Noona HQ dagatal (þ.e. ekki skrá þig inn t.d. með sameiginlegu netfangi stofunnar).
- Þú byrjar á því að fara í valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
- Ferð undir skipulag og skrollar neðst niður undir stillingar.
- Ferð að lokum undir aðgangur og smellir á viðbætur.
- Þar finnur þú Outlook og smellir á tengja.

- Nú birtist þessi skjár og ef þú gefur leyfi smellir þú á bláa hnappinn samþykkja.

- Næst opnast gluggi þar sem þú þarft að skrá þig inn í Outlook.
- Nú ferðu inn í Outlook dagatalið þitt og passar upp á að það sé hakað í dagatalið Noona: Noona IS.

- Nú ætti allt að vera klárt og bókanir í Noona HQ dagatalinu þínu ættu að byrja að flæða yfir í Outlook dagatalið þitt.
Hvernig virkar tengingin?
Dagatalstengingin er í aðra áttina (one-way sync) sem þýðir að tímabókanir í Noona HQ eru að flæða yfir í Outlook dagatalið en ekki öfugt.
Ef þú gerir breytingar á tímabókun í Noona HQ þá uppfærist sömuleiðis tímabókunin á Outlook dagatalinu.
Þá var það ekki fleira í bili. Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛


