Notkun gjafabréfa er tvíhliða. Þú getur bæði leyft viðskiptavinum að innleysa og þannig greiða með gjafabréfinu við bókun á Noona eða innleyst það í gegnum Noona HQ þín megin.
Greiðslur með gjafabréfum í sölukerfinu
Ef þú ert að nota sölukerfið opnarðu tímabókunina og velur Afgreiða ➡️ Greiða ➡️ velur greiðslumátann gjafabréf og setur þar inn kóðann á gjafabréfinu.
Ef viðskiptavinurinn er tengdur við gjafabréfið mun það koma sjálfkrafa undir inneign í söluferlinu.
Greiðslur með gjafabréfum ef þú ert ekki í sölukerfinu
Ef þú ert ekki með sölukerfið er hægt að fara í Sala → Gjafabréf og ýta á bláa "Nota gjafabréf" takkann til þess að innleysa gjafabréf.

Greiðslur með gjafabréfum á netinu
Einnig getur þú leyft viðskiptavinum þínum að greiða með gjafabréfum og klippikortum þegar bókað er í tímann á Noona. Á bak við hvert gjafabréf er kóði þannig að þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur að það sé hægt að greiða aftur með því.
Til þess að leyfa greiðslur með gjafabréfum þarftu að virkja valkvæmar fyrirframgreiðslur. Hér eru leiðbeiningar um hvernig það er gert.
Utanumhald
Öll seld gjafabréf, hvort sem það er á netinu eða beint í gegnum stofuna, birtast síðan undir Sala ➡️ Gjafabréf.
Þar er að finna yfirlit yfir helstu upplýsingar: kóði sem tilheyrir gjafabréfi, tegund gjafabréfs, virði, eftirstöðvar, titill gjafabréfs, hvenær það var keypt, gildistími, nafn kúnna sem er tengdur við gjafabréfið og staða.

Þú getur einnig smellt á þrjá punktana hægra megin á gjafabréfinu og séð þar notkunarsögu gjafabréfsins, tengt viðskiptavin við gjafabréfið (ef hann er ekki nú þegar tengdur), endursent gjafabréfið og eytt því út.

Einnig sérðu öll gjafabréf og klippikort sem eru tengd við viðskiptavini inn á þeirra viðskiptamannaspjaldi:

Yfirsýn viðskiptavina
Í Noona appinu geta viðskiptavinir síðan séð stöðu klippikorta og gjafabréfa sem þau eiga. Einnig hafa viðskiptavinir möguleika á að bæta því við í Google eða Apple wallet.

Bókhaldið
Hér eru nokku mikilvæg atriði fyrir bókhaldið.
Gjafabréf og klippikort eru alltaf greidd út til þín 24 klst. eftir að þau eru keypt á netinu/Noona óháð því hvort þau hafa verið notuð eða ekki.
Söluaðili þarf að greiða skatt af seldum klippikortum og gjafakortum á því tímabili sem það er selt.
Útskattur er líka bókaður af sölu eins og vanalega þegar að klippikort/gjafakort eru notuð.
Bókari getur farið inn í “Gjafabréf” skýrslu til að núlla út útskatt miðað við notkun klippikorta/gjafabréfa, svo að söluaðili borgi bara vaskinn einu sinni.
Þá er það ekki fleira í bili. Ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna 💛
