Stjórnaðu hvaða tilkynningar þú færð og hvernig þú vilt fá þær frá Noona HQ
Viltu fá tilkynningar um sumt en ekki annað? Með sérsniðnum tilkynningum getur þú stjórnað hvaða tilkynningar þú færð sendar frá Noona HQ.
Þú finnur þessa virkni með því að fara í valmyndina -> stillingar -> aðgangur -> tilkynningar.
Hvaða tilkynningar get ég fengið?
Netbókanirnar þínar
- Þegar tími er bókaður.
- Þegar tími er færður.
- Þegar tími er afbókaður.
Starfsmaður eða ritari breytir bókunum á dagatalinu þínu
- Þegar tími er bókaður.
- Þegar tími er færður.
- Þegar tími er afbókaður.
Aðrar netbókanir
- Þegar tími er bókaður.
- Þegar tími er færður.
- Þegar tími er afbókaður.
Greiðslur
- Netgreiðslur gerðar upp.
- Uppgjör mistókst.
Biðlisti
- Viðskiptavinur setur sig á biðlista.
Bókunarboð
- Bókunarboð samþykkt.
- Bókunarboð hafnað.

Hvert eru tilkynningar sendar?
Þú getur valið um hvort tilkynningarnar berist með tölvupósti, í símann frá Noona HQ appinu og/eða í bjölluna inn í Noona HQ.
💡 Sérsniðnar tilkynningar eru t.d. tilvaldir ef þú vilt fá tilkynningu þegar starfsmaður eða ritari bókar, breytir eða afbókar tíma á dagatalinu hjá þér, eða þegar viðskiptavinur afbókar, samþykkir/hafnar bókunarboði eða skráir sig á biðlista.
Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallbúbbluna. Hlökkum til að heyra frá þér! 💛