
Gjafabréfasala getur verið sniðug leið til þess að aukið tekjur og sýnileika ásamt því að ná til nýrra viðskiptavina og þannig skapa tækifæri fyrir fleiri að uppgötva og upplifa vörur eða þjónustu fyrirtækisins þíns.

Hvort sem þú vilt selja gjafabréf á stofunni hjá þér, á netinu eða hvoru tveggja þá getur þú selt og haldið utan um það allt á sama staðnum inn á Noona HQ aðgangnum þínum.
Það fyrsta sem þú gerir er að búa til gjafabréf í það sem þú selur.
Búa til gjafabréf / klippikort
- Þú byrjar á því að fara í valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
- Ferð undir sala og smellir á stillingar gjafabréfa.
- Smellir nú á bláa takkann "+ bæta við".
- Nú velur þú hvers slags gjafabréf þú vilt búa til

Nú er komið að því að sérsníða gjafabréfið ⬇️
Sérsníða gjafabréfin
Þegar þú býrð til gjafabréf þarftu alltaf að velja þjónustuna sem þú vilt byggja það á. Það er gert undir Almennt - Þjónusta.
Þú getur síðan stillt gjafabréfið eftir þínum þörfum:
Upplýsingar
Titill
- Sá titill sem þú vilt hafa á gjafabréfinu.Gildistími
- Hve lengi viltu að gjafabréfið gildi.Verðlagning
- Verðgildi og söluverð gjafabréfs.Lýsing sem birtist á gjafabréfinu í netsölu
- Texti sem birtist hjá gjafabréfinu í netsölu.Texti sem birtist á gjafabréfinu
- Texti sem mun birtast á gjafabréfinu ef það er prentað út.
Hægt er að breyta söluverðinu á gjafabréfum fyrir útsöludaga eins og Black Friday eða Singles Day og bjóða viðskiptavinum þannig upp á aflsátt 💸
Útlit
Mynd efst á gjafabréfi
- Mynd sem birtist efst á gjafabréfinu.Mynd neðs á gjafabréfi
- Mynd sem birtist neðst á gjafabréfinu.Bakgrunnslitur
- Litaþema á gjafabréfinu.Að lokum geturðu smellt á 'sækja' og skoðað hvernig gjafabréfið mun líta út:

Þá ertu búin/n að stofna gjafabréfin í kerfinu og getur farið að selja þau á netinu og eða í gegnum sölukerfið.
Hér í gegn getur þú lært hvernig þú selur gjafabréf á netinu eða í gegnum sölukerfið.
Þá er það ekki fleira í bili. Ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna💛
