Þegar þú smellir á tímabókun getur þú alltaf séð neðst niðri bæði næstu heimsóknir og fyrri heimsóknir. Þrátt fyrir að taka ekki mikið pláss eru nokkrar mjög gagnlegar upplýsingar sem koma fram þarna:
- Hvort viðskiptavinurinn eigi tíma framundan.
- Hefur viðkomandi komið áður?
- Í hvaða þjónustu kom viðskiptavinurinn í síðast?
- Hjá hvaða starfsmanni?
- Og hvenær var sá tími?
Skoðum til dæmis tíma hjá Söru. Með því að smella á tímabókun get ég sé að Sara er fastakúnni sem hefur verið að koma reglulega í þjónustuna "Dömuklipping" til Birnu. Þar sem ég hef verið að merkja mætingu get ég einnig séð að hún hefur mætt í alla tímana sína nema 19. júní sem var afbókaður.

Ekki hika við að heyra í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, vangaveltur eða athugasemdir. Þú getur sent okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna💛