Til þess að fylgja lögum og kröfum þá getur sölu-skipulagið verið snúið með marga verktaka og marga posa. En ekki hafa áhyggjur, við leysum það á einfaldan máta með sölukerfinu okkar.
Ef viðskiptavinir eru að greiða fyrir þjónustur og/eða vörur í tveimur mismunandi posum, þá þurfa tveir mismunandi reikningar að standa að baki greiðslanna tveggja.
Hver reikningur þarf að vera útgefinn af réttum söluaðila, sem er stundum stofan og stundum verktakinn.
Setja upp verktaka í sölukerfinu
- Verktaki skráir sig inn á sinn eigin Noona HQ aðgang. Ef þú ert ekki viss geturðu farið undir Stillingar -> Almennt og séð þar netfangið sem er innskráð.
- Ferð undir Stillingar -> Salan mín.
- Undir Eigin sölureikningar hakar þú í reitinn "Gefa út eigin sölureikninga" og fyllir út viðeigandi upplýsingar.

Nú ert þú skráð/ur sem verktaki í sölukerfinu!
Hvernig afgreiða verktakar í sölukerfinu?
Ef einn eða fleiri verktakar hafa sett upp Eigin sölureikninga inni á sínum aðgangi birtist þessi valmynd í hvert skipti sem Ný sala er stofnuð:

Hér er útgefandi reikningsins valinn sem mun koma til með að sjá um þessa sölu.
Ef valið er Afgreiða inni í tímabókun mun Noona HQ sjálfkrafa velja útgefanda reikningsins eftir því hvaða starfsmanni tímabókunin er hjá.
Tvær sölur í einu höggi
Stundum kemur það fyrir að viðskiptavinur ætlar að versa bæði við vektaka og stofuna sjálfa, t.d. þegar hann kaupir vöru frá stofunni en þjónustu frá verktakanum. Þá hvetjum við til notkunar á Nýr reikningur virkninni.

Með þeirri virkni er hægt að græja báðar sölurnar í einu og sama söluferlinu.
Eins og sjá má á myndinni hér að neðan eru tveir reikningar frá mismunandi útgefendum í lok söluferlisins.

Og þú getur meira að segja sent báða reikningana í einu á viðskiptavininn.

Ef þú vilt sleppa við það að rukka viðskiptavininn í gegnum sitt hvorn posann fyrir vöru og þjónustu hvet ég þig til þess að skoða Noona Paylink. Með því getur þú rukkað fyrir hvoru tveggja í einni greiðslu en bak við tjöldin er lagt inn á sitt hvorn bankareikninginn. Smelltu hér til þess að fræðast um það.
Greiðslumátar
Vissur þú að sem verktaki í kerfinu getur þú tengt posann þinn við sölukerfið, rukkað viðskiptavini fyrirfram og fengið staðfestingargjaldið lagt beint inn á þinn reikning?
Hér fyrir neðan geturðu skoðað möguleikana:
Noona Paylink
Greiðslulausn sem gerir þér kleift að rukka viðskiptavini með því að senda rukkun beint í símann þeirra með einum smelli úr sölukerfinu. Smelltu hér til þess að læra meira um hvernig Noona Paylink virkar.
Noona Pay
Það er ekki nauðsynlegt að vera í áskrift af sölukerfinu til þess að taka við fyrirframgreiðslum í gegnum Noona appið en það auðveldar reikningagerð og bókhaldið töluvert! Smelltu hér til þess að læra meira um hvernig fyrirframgreiðslur virka.
Tengja posa fyrir verktaka
Ef þú ert verktaki með eigin posa þá getur þú tengt hann við sölukerfið.
Leiðbeiningar fyrir posa frá Landsbankanum / Verifone
Leiðbeiningar fyrir posa frá Straumi
Leiðbeiningar fyrir posa frá Teya
Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛
