Reglusett í borðabókunum Noona HQ

Til þess að ákvarða hvenær á að vera hægt að bóka upplifun í borðabókanakerfinu þá þarftu að setja upp reglusett.

Það eru tvö mismunandi reglusett.

  1. Reglusett opnunartíma 
  2. Sniðmát fyrir reglusett

Reglusett opnunartíma

Þetta reglusett er almenni opnunartíminn sem þú ert með fyrir hefðbundna borðabókun.


Sniðmát fyrir reglusett

Þetta reglusett ákvarðar hvenær á að vera hægt að bóka einstaka upplifanir sem geta verið yfir ákveðinn dag eða ákveðið tímabil.

Þú getur smellt á "+Bæta við" í hægra horninu og valið "Nýtt reglusett" eða smellt á plúsinn við hliðina á "Sniðmát fyrir reglusett".

Þar getur þú valið hverskonar reglu þú vilt setja upp. Um er að ræða 6 mismunandi tegundir af reglum.

  • Opnunartímar: þessi reglar ákvarðar opnunartímann fyrir viðburðinn. Athugið að ef opnunartíminn á að vera öðruvísi en hefðbundinn opnunartími þá þarf að stilla hann hér.
  • Netbókanir: Hérna ertu að stilla hvenær viðskiptavinir eiga að geta bókað í viðburðinn á netinu.
  • Sérsniðinn hámarksfjöldi gesta: Hér setur þú inn hámarksfjölda gesta sem getur komið á viðburðinn.
  • Yfirskrifa lengd bókunar: Hér getur þú breytt lengdinni á bókuninni og ef það á við um ákveðinn fjölda gesta.
  • Greiðslur: Þú getur krafist fyrirframgreiðslu, staðfestingargjalds eða að fá kortaupplýsingar viðskiptavinar fyrir bókun á viðburðum.


  • Sérsniðin skilaboð: Hér getur þú sérsniðið skilaboðin sem viðskiptavinir fá send í tölvupósti og við staðfestingu á bókun fyrir viðburðinn.

Síðan þarftu að stilla dagsetninguna fyrir upplifunina. Það er gert með því að ýta á þrjá punktana hægra megin á reglusettinu

-> -> Velur síðan + Bæta við tímabili 

og setur þar inn dagsetninguna eða tímabilið undir 'upphafs dagsetning' og 'loka dagsetning'.


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna eða í tölvupósti á hq@noona.is ef einhverjar spurningar eða pælingar vakna💛