Breytingasaga

Hafðu meiri yfirsýn og vissu um breytingar á tímabókunum og upplýsingum um viðskiptavini.

Hefur þú einhvern tímann lent í því að breyta óvart upplýsingum um viðskiptavin sem þú þurftir síðan enn á að halda? Eða að glata mikilvægum upplýsingum um viðskiptavin vegna þess að einhver annar eyddi því óvart út? Þá er breytingasagan eitthvað fyrir þig.

Hvar nálgast ég breytingastöguna?

Til þess að nálgast breytingasögu viðskiptavina ferðu undir valmyndina -> viðskiptavinir -> leitar eftir viðkomandi -> smellir á breytingar. 

Til þess að nálgast breytingasögu tímabókunar smellirðu á viðkomandi tímabókun -> smellir á breytingasaga.

Hvað sé ég í breytingasögunni?

Breytingasagan gerir þér kleift að skoða allar breytingar sem hafa verið gerðar á tímabókunum og viðskiptavinum. Einnig getur þú fylgst með og sannreynt öll sjálfvirk skilaboð sem viðskiptavinir hafa fengið frá Noona.

Breytingasaga um tímabókun
  • Hvenær var tímabókun færð og hver gerði það.
  • Hvenær var afbókað og hver gerði það.
  • Hvenær var tímalengd breytt og hver gerði það.

  • Hvenær var tölvupóstur sendur og á hvaða netfang.
  • Hvenær var tölvupóstur opnaður.
  • Hvenær var tilkynning í Noona appið send.
  • Hvenær var SMS áminning send.



Breytingasaga um viðskiptavini
  • Hver bætti við eða breytti nafni og hvenær.
  • Hver bætti við eða breytti símanúmeri og hvenær.
  • Hver bætti við eða breytti netfangi og hvenær.
  • Hver bætti við eða breytti kennitölu og hvenær.
  • Hver bætti við eða breytti minnispunkti og hvenær.


Þá er það ekki fleira í bili, en ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna!

Bestu kveðjur,
Noona Teymið 💛