Þýðingar

Í Noona HQ er hægt að þýða alla texta sem birtast inn í Noona HQ, á Noona markaðstorginu og í tölvupósti og SMS-samskiptum við viðskiptavini. Þýðingar birtast síðan út frá stillingum notenda. 

Þetta tryggir hnökralausa upplifun á markaðstorginu, í Noona HQ og í öllum samskiptum við viðskiptavini.


👤 Hvar stilla notendur tungumálið?

Noona HQ notendur

Starfsfólk getur valið á hvaða tungumáli þau vilja stilla sinn aðgang. Það er gert með því að fara undir valmynd - stillingar - almennt.

Noona notendur 

Viðskiptavinir þínir geta sömuleiðis stillt tungumálið eftir sínum þörfum. Inn á noona.is er það gert efst uppi í hægra horninu og í Noona appinu er smellt á persónuna uppi í hægra horninu og smellt á hnöttinn neðst niðri á skjánum.

💡 Hægt er að velja sjálfvalið tungumál fyrir útsendar áminningar eins og SMS skilaboð og tölvupósta. Ef viðskiptavinur er með Noona appið stillt á öðru tungumáli þá ræður tungumálið í appinu á hvaða tungumáli þau fá áminningarnar. 

 

Hvar? Valmynd - stillingar - upplýsingar - tungumál áminninga. 


✍️ Hvað er hægt að þýða?

Hægt er að þýða alla texta sem birtast við bókanir í Noona HQ, á Noona markaðstorginu og í samskiptum við viðskiptavini í tölvupósti og SMS-um. 

  1. Titla á þjónustum og upplifunum.
  2. Lýsingar á þjónustum og upplifunum.
  3. Yfirflokkar á þjónustum og upplifunum.
  4. Titla og lýsingar á gjafabréfum.
  5. Lýsing á fyrirtækinu.
  6. Staðfestingarskilaboð.
  7. Skilaboð sem sendast við bókunarboð.
  8. Nögn og lýsingar á svæðum / starfsmönnum.
  9. Lýsingar á starfsmönnum sem birtast í netbókunum.
  10. Sérsniðin SMS ámmingarskilaboð.
  11. Bókunarstaðfesting.
  12. Bókunarspurningar.


🌍 Hvaða tungumál er hægt að þýða á?

íslensku, ensku, spænsku, frönsku, portúgölsku, tékknesku og rússneska. 


🔧 Hvar finn ég þessar stillingar?

Titlar á þjónustum og upplifunum.

Hvar? Valmynd - þjónustur/upplifun - velur viðkomandi þjónustu/upplifun - smellir á hnöttinn. 



Lýsingar á þjónustum og upplifunum

Hvar? Valmynd - þjónustur - velur viðkomandi þjónustu - netbeiðnir - smellir á hnöttinn eða bæta við.


Yfirflokkar á þjónustum og upplifunum

Hvar? Valmynd - þjónustur/upplifun - velur viðkomandi yfirflokk - smellir á hnöttinn. 


Titlar og lýsingar á gjafabréfum

Hvar? Valmynd - stillingar - gjafabréf - velur viðkomandi gjafabréf - smellir á hnöttinn eða bæta við.

 
Lýsing á fyrirtækinu

Þessi texti birtist undir 'um okkur' inn á Noona prófíl fyrirtækis. 

Hvar? Valmynd - stillingar - netbeiðnir - prófíll - lýsing. 


Staðfestingarskilaboð

Þessi skilaboð verða sýnileg á staðfestingarsíðunni eftir bókun og innifalin í staðfestingarpóstinum sem viðskiptavinir þínir fá eftir að bókun þeirra hefur verið staðfest.

Hvar? Valmynd - stillingar - netbeiðnir - öryggi - skrollar niður undir staðfesting - smellir á hnöttinn eða bæta við.


Skilaboð sem sendast við bókunarboð

Hvar? Valmynd - stillingar - netbeiðnir - öryggi - skrollar niður undir staðfesting - smellir á hnöttinn eða bæta við.


Nöfn og lýsingar á svæðum

Hvar? Valmynd - stillingar - svæði - velur viðkomandi svæði - smellir á hnöttinn eða bæta við.


Lýsingar á starfsmönnum sem birtast í netbókunum

Hvar? Valmynd - stillingar - starfsmenn - velur viðkomandi starfsmann - netbeiðnir - smellir á hnöttinn eða bæta við.

 
Sérsniðin SMS skilaboð

Hvar? Valmynd - áminningar - stofnar áminningu - smellir á hnöttinn eða bæta við.


Bókunarstaðfesting

Staðlaður tölvupóstur sem sendist út þegar tími hefur verið bókaður.


Bókunarspurningar

Hvar? Valmynd - þjónustur - velur viðkomandi þjónustu - netbeiðnir - skrollar niður undir bókunarspurning - smellir á hnöttinn eða bæta við.


Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.