Förum yfir þau atriði sem þarf að uppfæra ef þú ert að færa þig um staðsetningu.
Skref til að uppfæra staðsetninguna í Noona HQ
- Byrjaðu á að fara í Valmyndina -> Netbeiðnir -> Prófíll fyrirtækis -> Breyta prófíl.
- Þar smellir þú á x-ið hjá núverandi staðsetningu og skrifar inn nýja staðsetningu.

Athugið að staðsetningin þarf að vera nákvæmlega eins og hún er í Google maps og því er sniðugt að nota uppástunguna sem kerfið kemur með þegar þú slærð inn heimilisfangið.

Ef þið eruð með staðsetninguna í SMS skilaboðum eða staðfestingar tölvupósti þá þarf sérstaklega að uppfæra þau skilaboð líka.
Breyta SMS skilaboðum:
Byrjar á því að fara í Valmyndina -> Skilaboð -> Áminningar og getur breytt skilaboðunum þar inni.

Breyta staðfestingartölvupósti:
Byrjar á því að fara í Valmyndina -> Stillingar -> Sýnileiki -> Staðfesting -> Staðfestingarskilaboð.

Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef einhverjar spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛