Til að kreditfæra reikning útgefinn í SalesCloud eru nokkur skref sem þarf að framkvæma.
Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is
1. Farðu í valmyndina vinstra megin og veldur Sales > Invoices
2. Finndu reikninginn sem þarf að kreditfæra en hægt er að filtera eftir SR númeri, nafni eða kennitölu viðskiptavinar og dagsetningu.
3. Smelltu á reikninginn og hægra megin á skjánum koma upp 3 valmöguleikar, Credit Invoice / Download Invoice / Send Invoice.
4. Smelltu á Credit Invoice og smelltu svo á Confirm til staðfestingar

5. Credit Invoice has been created ætti nú að koma upp á skjáinn 
6. Næsta skref er að fara inn í Customers og finna þar viðskiptavinin sem var verið að stofna kredit reikninginn. Hægt er að leita eftir nafni í "search" reitnum.
7. Smelltu á "Old Profile"
8. Farðu í Orders sem birtist undir nafni viðskiptavinar. 
9. Efst á listanum ætti að birtast ný pöntun sem sýnir upphæðina sem var að kreditfæra. Smelltu á "View" hnappinn hægra megin til að komast inn í pöntunina sjálfa. 
10. Neðst á skjánum er grænn "Pay" hnappur. Smelltu á hann og veldu "Invoice" greiðsluleiðina.
11. Nú ætti að vera kominn nýr reikningur með nýju SR númeri til að senda á viðskiptavin. 